Miðasalan á Airwaves komin í gang 20. september 2005 00:01
Miðasala á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves 2005 hófst á mánudaginn en hátíðin fer fram í sjöunda sinn helgina 19.-23. október og eins og undanfarin ár eru tónleikastaðirnir allir í miðborg Reykjavíkur. Loftkastalinn er nýr tónleikastaður í dagskrá hátíðarinnar í ár og mun litli og stóri salur hans ásamt Nasa, Gauknum, Grand rokk og Pravda verða aðal tónleikastaðir Iceland Airwaves 2005. Í fyrra var uppselt á Airwaves í fyrsta sinn og Hr. Örlygur, skipuleggjandi hátíðarinnar, hvetur því fólk til að tryggja sér miða í tíma. Einungis 3.000 miðar verða til sölu á hátíðina hérlendis. Miðasala Iceland Airwaves 2005 fer fram í verslunum Skífunar (Laugavegi, Kringlunni og Smáralind) og á Midi.is. Miðaverð er 5.700 krónur auk miðagjalds söluaðila. Meðal þeirra 130 listamanna sem koma fram á Iceland Airwaves 2005 eru Annie, Apparat Organ Quartet, Architechture in Helsinki, Babyshambels, The Fiery Furnaces, Ghostigital, Gus Gus, Juliette & The Licks, Junior Senior, Hjálmar, The (International) Noise Conspiracy, Jagúar, Mínus, The Mitchell Brothers, Singapore Sling, Without Gravity og The Zutons. Bandaríska raftónlistar dúóið Ratatat frá New York hefur nú bæst við dagskrá Iceland Airwaves en óhætt er að segja að hér sé á ferðinni eitt af mest spennandi erlendum heimsóknum á Airwaves í ár. Ratatat gaf út sína fyrstu breiðskífu í fyrra og fékk mikið lof fyrir. Þeir hafa túrað með ekki ómerkari listamönnum en Franz Ferdinand, !!!, Tortoise og Interpol og endurhljóðblandað lög með Method Man og Missy Elliot. Tónleikar þeirra í Reykjavík eru einu tónleikarnir sem þeir hafa skipulagt í haust. Aðrir sem nú bætast við dagskrá Iceland Airwaves 2005 eru Ensími, Dr. Spock, Exos, Cell 7, Bent & 7Berg, The Telephthetics, Dóri DNA, Intact, hellvar, Spaceman, We Painted the Walls og Bryndís. Allar frekari upplýsingar um Iceland Airwaves og þá listamenn sem koma fram á hátíðinni má nálgast á www.icelandairwaves.com
Menning Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira