Niðurskurður vegna uppbyggingar 17. september 2005 00:01 MYND/AP
George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld í Bandaríkjunum verði að grípa til niðurskurðar til að geta greitt kostnaðinn sem hlýst af uppbyggingunni á hamfarasvæðunum í suðurhluta Bandaríkjanna. Aðeins einum degi eftir að George Bush, forseti Bandaríkjanna, hét einhverri mestu uppbyggingu sögunnar á hamfarasvæðunum við Mexíkóflóa segir hann að til slíkra aðgerða verði ekki gripið nema með víðtækum niðurskurði annars staðar. Á sama tíma og áhyggjur repúblikana fara vaxandi yfir kostnaðinum vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar undirstrikar forsetinn að hægt verði að standa við gefin loforð án þess að grípa til skattahækkana. Bush segir ljóst að það kosti mikla peninga að endurreisa eyðilagðar borgir og byggðir en hann segist sannfærður um að stjórnvöldum takist að halda utan um það mikilvæga verkefni. Skynsemin verði látin ráða í þessum efnum og að ekki verði farið út í nokkrar aðgerðir nema að vel athuguðu máli. Fundist hafa um 800 lík á flóðasvæðunum í suðurhluta Bandaríkjanna þar sem fellibylurinn Katrín reið yfir. Þótt Bandaríkjaforseti hafa ekki sett verðmiða á kostnaðinn vegna uppbyggingarinnar telja fulltrúar á Bandaríkjaþingi að það kosti á endanum í kringum 200 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði tólf þúsund milljarða íslenskra króna, að hreinsa og byggja upp heilbrigðiskerfi, heimili og skóla á svæðunum. Karl Rove, starfsmannastjóri Hvíta hússins, Claude Allen, helsti ráðgjafi Bush í innanríkismálum, og Michael Chertoff, heimavarnaráðherra, hafa nú uppbyggingaráform forsetans til skoðunar.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira