Innlent

Og Vodafone og Neyðarlínan semja

Og Vodafone og Neyðarlínan hafa gengið frá samningi sem gerir Neyðarlínunni kleift að staðsetja farsíma Og Vodafone um leið og hringt er í 112. Með þessu verður hægt að staðsetja alla farsímanotendur á Íslandi um leið og þeir hringja í Neyðarlínuna. Í kjölfar sjóslyssins við Viðeyjarsund var bent á að einungis væri hægt að staðsetja farsímanotendur Símans í rauntíma en lengri tíma tæki fyrir Neyðarlínuna að staðsetja farasímanotendur Og Vodafone. Þannig þurftu starfsmenn Neyðarlínunnar að hafa samband við bakvakt hjá Og Vodofone til að fá upplýsingar um staðsetningu farsíma. Þessi annmarki er þó ekki talinn hafa tafið björgun fólksins um borð í bátnum sem fórst á Viðeyjarsundi en almennt má segja að með breytingunum á að verða mögulegt að stytta þann tíma sem tekur að koma þeim sem hringja til hjálpar. Í samtali við fréttastofu Bylgjunnar og Stöð 2 í morgun sagði Gísli Þorsteinsson, almannatengslafulltrúi Og Vodafone, að verið væri að klára alla tæknilega útfærslu á þessu verkefni þannig að möguleiki sé á að senda merkið beint til Neyðarlínunnar. Vonast er til að þjónustan verði virk innan tveggja mánaða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×