Erlent

Axlar ábyrgð á seinagangi

George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í dag axla ábyrgð á þeim seinagangi sem alríkisstjórnin hefði sýnt í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna. Þá sagði hann enn fremur að Katrín hefði afhjúpað alvarleg vandamál varðandi viðbragðsgetu stjórnsýslunnar á öllum stigum við náttúruhamförum og sagðist taka ábyrgð á því að alríkisstjórnin hefði ekki sinnt starfi sínu sem skyldi. Bush sagðist skyldu komast að því hvað hefði farið úrskeiðis og hvað hefði verið gert rétt og að mikilvægt væri að yfirvöld í fylkjum Bandaríkjanna og alríkisstjórnin ynnu betur saman til þess að geta tekið betur á hugsanlegum árásum eða frekari náttúruhamförum. Forsetinn hefur sætt harðri gagnrýni fyrir viðbrögð stjórnvalda við hamförunum og hefur hingað til ekki viljað ræða um hverjum sé um að kenna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×