Norska stjórnin fallin 12. september 2005 00:01
Verkamannaflokkurinn, Framfaraflokkurinn og Vinstriflokkurinn eru sigurvegarar í norsku þingkosningunum í gær. Í gærkvöldi benti allt til þess að vinstrabandalag Verkamannaflokksins, Sósíalíska vinstriflokksins og Miðflokksins næði meirihluta þingsæta og þyrfti ekki að treysta á stuðning þingmanna smáflokka. Þegar Fréttablaðið fór í prentun virtist sem vinstrabandalagið undir forystu Jens Stoltenberg hefði fengið samanlagt 88 þingsæti á móti 81 þingsæti hægriflokkanna. Stjórnarflokkarnir tveir, Hægriflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn, töpuðu miklu fylgi. Talið er að Hægriflokkurinn hafi goldið þess að margir kjósendur hans hafi að þessu sinni kosið Vinstriflokkinn til þess að koma honum yfir fjögurra prósenta fylgi, en þannig öðlaðist hann rétt til uppbótarþingsæta. Allt benti til þess í gærkvöldi að Vinstriflokkurinn næði um sex prósenta fylgi og bætti við sig að minnsta kosti átta þingsætum. Framfaraflokkurinn bætir við sig meira en sjö prósentustigum frá kosningunum 2001 og hefur flokkurinn nú langflest þingsæti á meðal hægriflokka í Noregi. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur sagði í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi að færi svo sem allt benti til, að rauðgræna bandalagið, Verkamannaflokkurinn, Sósíalíski vinstriflokkurinn og Miðflokkurinn, næði völdum yrði það í fyrsta skipti sem sósíalískur flokkur fengi ráðherra í ríkisstjórn í Noregi. Slíkt hefði í raun einungist gerst á Íslandi og í Finnlandi. "Það má einnig telja athyglisvert að Vinstriflokkurinn virðist - ef svo má segja - hafa fengið talsvert af atkvæðum að láni frá Hægriflokknum," segir Ólafur Þ. Harðarson. Jens Stoltenberg, formaður Verkamannaflokksins, fagnaði sigri ákaft í gærkvöldi þegar úrslit lágu fyrir og sagði sigur flokksins mikinn. Erna Solberg, formaður Hægriflokksins, lýsti vonbrigðum og viðurkenndi að sama skapi ósigur flokksins en flokkurinn tapaði þriðjungi þess fylgis sem hann hlaut í kosningunum árið 2001.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira