Stefnir í sigur vinstriflokkanna 12. september 2005 00:01
Norðmenn kusu til þings í dag og skoðanakannanir sýna að mjótt er á mununum milli ríkisstjórnar Kjells Magnes Bondeviks og vinstri flokkanna í stjórnarandstöðu. Samkvæmt útgönuspám virðist stjórnin fallin og það nokkuð afgerandi. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 er í Osló í Noregi, og segir útgönguspár merkilega afgerandi, sérstaklega ef horft sé til síðustu skoðanakannana. Þær bendi til þess að stjórnin sé fallin og hið rauðgræna bandalag stjórnarandstöðunnar fái líklega 86 þingmenn en stjórnarflokkarnir 83. Hægriflokkur Bondeviks virðist ætla tapa sex prósentustigum frá síðustu kosningum og Kristinlegi þjóðarflokkurinn fer niður um 4,7 prósentustig. Verkamannaflokkurinn virðist hins vegar bæta við sig 8-9 prósentustigum sem þýði það hann verði langstærsti flokkurinn á þingi. Framfaraflokkur Carls I. Hagen bæti einnig við sig fylgi og fái á bilinu 17,5 til 19 prósent. Það er minna en menn bjuggust við en flokkurinn verður sá næststærsti á þingi. Aðspurður um það hvort útgönguspárnar séu í takti við það sem menn hafi haldið segir Ingólfur að þær séu í takt við það sem menn hafi haldið fyrir tveimur til þremur vikum. Þá leit allt út fyrir að Bondevik væri búinn að tapa en allt í einu fór að síga á ógæfuhliðina hjá stjórnarandstöðunni og Bondevik og félögum óx ásmegin. Þar til í morgun og fram eftir degi hafi fólk verði hvatt til að kjósa til þess að fá sem hæsta kjörsókn. Forsíður norsku blaðanna voru þaktar fréttum af kosningunum og það var mikið gert úr spennunni. Einn af hverjum tíu kjósendum var óákveðinn í morgun og Verdens Gang reyndi að hjálpa því fólki með hálfgerðu krossaprófi. Í dag gengu enn þá sjálfboðaliðar á vegum hinna ýmsu flokka og minntu fólk á að kjósa. Frambjóðendur kusu reyndar strax í gær eins og Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra. Meginkeppinautur hans, Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, kaus hins vegar í morgun. Stjórnmálaskýrendur í Noregi telja að óvissa verði til þess að fleiri kjósendur mæti á kjörstað en oft áður og talið er að úrslit ráðist ekki fyrr en kosningu er nánast lokið. Að sama skapi er óvíst hvað það verður sem ræður að lokum úrslitum, en meðal þátta sem skipta máli er gengi Framfaraflokksins sem gæti orðir með stærstu flokkum á þingi og svo gengi smálfokka á borð við Strandflokkinn sem er flokkur hvalveiðisinna. Sérfræðingar sem hafa rýnt í kannanir bæta svo á óvissuna með því að slá föstua að útreikningar fjölmiðla á sætaskipan á þingi út frá könnunum séu nánast úr lausu lofti gripnar því munurinn sé oft innan skekkjumarka og því vonlítið að segja til um úrslitin út frá könnununum. Það stefnir því allt í spennandi kosninganótt. Guðni Ölversson blaðamaður hefur búið lengi í Noregi. Aðspurður hvað hann lesi í útgönguspárnar segir Guðni að sú taktík sem stjórnarflokkarnir tóku upp fyrir hálfum mánuði hafi ekki gengið eftir sem skyldi. Þá hafi þeir tekið upp á því, þegar allar spár haf bent til þess að vinstriflokkarnir myndu vinna öruggan sigur, að senda töluvert stóran hluta af sínum kjósendum yfir á Vinstriflokkinn, sem sé með í stjórn, til þess að forða því að hann dytti út af þingi. Allt hafi þetta hafi verið gert til þess að Bondevik gæti haldið áfram að verða forsætisráðherra. Þetta hafi ekki gengið eftir. Hræðsluáróður stjórnarflokkanna hafi ekki skilað árangri þrátt fyrir að hinir svokölluðu ríku frændur flokkanna hafi ausið peningum í Vinstriflokkinn.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira