Yfirmaður almannavarna hættur 12. september 2005 00:01
Michael Brown, yfirmaður almannavarna í Bandaríkjunum, sagði af sér í gær. Ákvörðun Browns kemur ekki á óvart. Hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir lélegt skipulag hjálparstarfs á flóðasvæðunum í suðurhluta landsins og á föstudaginn var hann látinn hætta sem yfirmaður aðgerða á vettvangi. Björgunarsveitir fundu 45 lík á sjúkrahúsi í New Orleans í gær og hafa því alls fundist 506 lík á hamfarasvæðunum. Miklu fleiri er saknað. George W. Bush Bandaríkjaforseti neitaði því í gær að kynþáttamunur hefði átt nokkurn þátt í því að fólk skyldi í stórum stíl hafa verið skilið eftir innlyksa í kjölfar fellibylsins Katrínar. Ýmsir gagnrýnendur hafa haldið því fram að viðbrögðin hefðu verið skjótari og betri hefði ekki eins stór hluti strandaglópanna verið fátækir og svartir og raunin var. "Fellibylurinn fór ekki í manngreinarálit og það gerðu þeir sem unnu að björgunarstörfum ekki heldur," sagði Bush við fréttamenn í New Orleans, en þangað hélt hann í gær til að skoða ástandið þar með eigin augum. Ekið var með forsetann um kaffærð hverfi borgarinnar í herbílalest. Bush vísaði því einnig ásökunum þess efnis á bug, að þjóðvarðliðið og herinn væri of upptekinn af stríðinu í Írak til að sinna neyðarástandi í Bandaríkjunum sjálfum. "Við eigum nóg af hermönnum til að sinna hvoru tveggja," sagði hann. Óöld og stjórnleysi ríkti í New Orleans í nærri viku eftir að fellibylurinn skall á, uns "riddaraliðið mætti á svæðið" eins og einn hershöfðinginn orðaði það.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira