Ekki seinagangur vegna litarháttar 12. september 2005 00:01
George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði því í dag að stjórnvöld hefðu brugðist seint við hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna þess að flest fórnarlambanna hefðu verið blökkumenn og sagði fáránlegt að halda því fram að ekki hefði verið til nægur mannafli til björgunarstarfa vegna Íraksstríðsins. Þessi orð lét forsetinn falla eftir að hafa ekið um New Orleans í dag og kynnt sér aðstæður þar í borg, en hluti borgarinnar er enn á kafi eftir flóðin. Stjórnvöld hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa brugðist seint við eftir yfirreið fellibylsins Katrínar yfir suðurströnd Bandaríkjanna fyrir tveimur vikum og hafa leiðtogar blökkumanna í landinu sumir sagt það stafa af því að fjölmörg fórnarlambanna hafa verið þeldökk og fátæk. Þá hefur traust Bandaríkjamanna í garð Bush minnkað töluvert eftir hamfarirnar og ekki mælst minna frá því að hann tók við embætti. Bush, sem var í þriðju ferð sinni á flóðasvæðin og þeirri fyrstu á jörðu niðri í New Orleans, sagði mikla vinnu fram undan og að aðalatriðið væri að koma öllu í samt lag á svæðinu, nægur tími væri til þess að finna sökudólg varðandi seinagang í björgunarstörfum.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira