Erlent

Unglingspiltar fundust látnir

Lögregla í bænum Wokingham í Berkshire í Bretlandi hefur handtekið tvo 18 ára pilta í tenglsum við morð á tveimur öðrum piltum á fimmtánda og sautjánda ári í gærkvöld. Talið er að báðir drengirnir hafi verið stungnir til bana, en líkin af þeim fundust í vinsælum almenningsgarði í bænum. Ekki er ljóst hvort hinir handteknu eru grunaðir um verknaðinn eða hvers vegna drengirnir voru myrtir en lögregla yfirheyrir nú piltana tvo vegna málsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×