Erlent

Handtóku 70 vegna fíkniefnaneyslu

Lögreglan í Singapúr réðst inn á nokkra af fínustu börum borgarinnar í gær og handtók 70 manns fyrir fíkniefnamisnotkun. Fíkniefnalöggjöfin í Singapúr er með þeim ströngustu í heimi þar sem þeir sem eru gripnir með meira en fimmtán grömm af heróíni, 30 grömm af kókaíni, hálft kíló af kannabisefnum eða 250 grömm af amfetamíni eru dæmdir til hengingar. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið magn efna hver og einn var með og þar með hversu margir eiga von á dauðarefsingu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×