Enn óljóst um tölu látinna 11. september 2005 00:01
Minningarathafnir um fórnarlömb hryðjuverkaárásanna 11. september voru haldnar í nokkrum skugga fellibylsins Katrínar. Bandaríska þjóðin er enda rétt að gera sér grein fyrir því sem gerðist á hamfarasvæðunum í suðurhluta landsins og enn er langt þar til ljóst verður hversu margir týndu þar lífi. Mun betur gengur að dæla flóðavatni frá New Orleans en reiknað var með, svo borgin gæti verið orðin nokkurn veginn þurr um miðjan næsta mánuð. Nokkur þúsund íbúar neita enn að fara og svo virðist sem hótunum um að flytja þá á brott með valdi verði ekki fylgt eftir. Lögreglu- og hermenn sem ganga enn hús úr húsi nota leitarhunda til að finna lík. Staðfestur fjöldi látinna í Louisiana-ríki er sem stendur um þrjú hundruð en vitað er að fórnarlömbin eru mun fleiri. Nokkurn tíma mun taka að ganga í hvert einasta hús og leita að látnum og svo er eftir að sjá hvað kemur undan flóðavatninu þegar dælingu er lokið. Fjöldi látinna virðist þó vera mun minni en óttast var um tíma og standa vonir til að ekki þurfi að nota mestan hluta líkpokanna tuttugu og fimm þúsund sem pantaðir voru. Bandaríski Rauði krossinn bað í gær um 40.000 sjálfboðaliða til að hjálpa fórnarlömbum fellibylsins því brýn þörf sé að að þeir 36.000 sjálfboðaliðar sem nú eru við störf fái hvíld. Talsmaður Rauða krossins sagði að hjálparstarfið myndi halda áfram næstu mánuði og því þyrfti fleira fólk til að leysa af þreytta sjálfboðaliða sem hafa unnið sleitulaust dögum saman. Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, heimsótti flóttamannabúðir í Texas í dag og mærði Texasbúa fyrir skjót og góð viðbrögð en vildi ekkert ræða um gagnrýnina á seinagang alríkisstjórnarinnar. George Bush Bandaríkjaforseti fór einnig í sína þriðju heimsókn á flóðasvæðin í dag en í útvarpsávarpi sínu í dag líkti hann uppbyggingunni sem framundan er í New Orleans við uppbygginguna í New York eftir árásirnar 11. september 2001. Stuðningur við Bush hefur aldrei mælst minni en nú eftir hamfarirnar, um 38%.
Erlent Fréttir Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Erlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Fleiri fréttir Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Segir Taívani ekki vilja átök en þeir muni ekki gefa eftir „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Sjá meira