Rúmlega 30 lögreglumenn særðust 11. september 2005 00:01
Verstu óeirðir í áraraðir brutust út í Belfast á Norður-Írlandi í gær og stóðu fram undir morgun. Á fjórða tug lögreglumanna særðist þegar mótmælendur í göngu Óraníureglunnar köstuðu í þá múrsteinum og heimatilbúnum bensínsprengjum og kveiktu í bílum og byggingum. Óraníureglan er elsta og öflugasta hreyfing þeirra Norður-Íra sem eru mótmælendatrúar og vilja hafa sem sterkust tengsl við Bretland. Á hverju hausti marsera Óraníumenn um götur Belfastborgar til að minnast sigurs Vilhjálms af Óraníu á kaþólska konunginum Jakobi öðrum í orrustu á sautjándu öld. Kaþólikkar eru því ekki sérlega hrifnir að þessum göngum og vilja ekki sjá þær í sínum hverfum. Nokkuð gott samkomulag hefur verið um þær síðustu árin eftir að sérstök bresk göngunefnd var skipuð árið 1997 til að hafa umsjón með göngunum. Í gær varð hins vegar allt vitlaust þegar lögreglumenn hugðust koma í veg fyrir að Óraníumenn þrömmuðu í gegnum Springfieldhverfið sem er rammkaþólskt. Átökin breiddust út um borgina og áttu tvö þúsund lögreglumenn og hermenn sem kallaðir voru til í mestu vandræðum með að ná stjórn á borginni á ný. Mótmælendur köstuðu heimatilbúnum sprengjum og múrsteinum í þá og til skotbardaga kom á að minnsta kosti einum stað. Bílum var stolið í tugatali og þeir brenndir og notaðir í götuvirki. Í norðurhluta Belfast var kveikt í byggingum líka og stóðu átökin fram undir morgun. Talsmenn lögreglunnar segja mótmælendur bera ábyrgð á því hversu alvarlegt ástandið varð, en Óraníumenn saka lögregluna hins vegar um óþarfa hörku og ofbeldi en hún sprautaði vatni yfir mótmælendur og skaut á þá plastkúlum. Ekki er vitað um fjölda særðra mótmælenda en vitað var af einum sem var lagður inn með skotsár.MYND/AP
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira