Innlent

Fagnar forgangsverkefnum Gæslunnar

Dómsmálaráðherra fagnar því að forgangsverkefni Landhelgisgæslunnar, nýtt skip og ný flugvél, séu í höfn. Þrír milljarðar af söluhagnaði Símans verða notaðir við kaupin. Stefnt er að því að nýtt varðskip verði tekið í notkun árið 2008 en ný flugvél ári áður. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti í dag hugmyndir sem upp eru um skipa og flugvélakaup Landhelgisgæslunnar. Til stendur að kaupa hvoru tveggja og er áætlað að um 1,7 til 2,5 milljarðar fari til skipakaupa og tæpir tveir milljarðar í nýja flugvél. Viðræður vegna skipakaupa hafa staðið yfir við norsku og dönsku strandgæsluna og er helst horft til nýjasta starandgæsluskips Norðmanna Harstad til viðmiðunar. Ýmsar flugvélagerðir koma til greina, ein þeirra er af gerðinni DASH 8. Hann segir fagnaðarefni að hafa náð þessum áfanga og fagnaðarefni að búið sé að finna út hvaða þarfir á að gera til þessara skipa og flugvéla. Hann segir það einnig vera sérstakt gleðiefni að ríkisstjórnin hafi tekið þessa ákvörðun. Björn segir dráttarkraft nýs varðskips skipta miklu máli þar sem skip í flota Íslendinga séu orðin mun stærri en áður var og minnir á strand Baldvins Þorsteinssonar í mars í fyrra. Þá bendir hann á fjölda skemmtiferðaskipa og olíuskipa í efnahagslögsögunni. Hann segir milljarðana þrjá duga til þess að festa kaup á bæði flugvél og skipi en síðan þarfa að ákveaða hvernig tækjabúnað á að fjárfesta í. Nýr og endurbættur Ægir kom til hafnar í morgun og hefur brúin verið stækkuð og tækjakostur aukinn til muna. Að auki hefur verið bætt við helmingi öflugra spili en fyrir var. Skipverjar Ægis voru ánægðir með breytingarnar í dag enda hafa allar káetur verið endurbættar og fylgir baðherbergi hverri þeirra. Endurbæturnar voru gerðar í Póllandi og kostuðu þær rúmlega 131 milljón króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×