Farið of geyst með ráðstöfun fjár 7. september 2005 00:01
Formaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnina fara of geyst í að ráðstafa fénu, sem fékkst fyrir sölu Símans, fram í tímann. Hún telur farsælla að leggja peningana til hliðar og ávaxta þá fyrst um sinn í stað þess að ráðstafa fénu fram í tvö næstu kjörtímabil. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur gagnrýnt hvernig stjórnvöld hafa staðið að ráðstöfun símasölupeningana þótt hann telji verkefnin góð og gild. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tekur undir orð Steingríms og bætir við að henni finnist ótímabært að ráðstafa fénu svo langt fram í tímann. Ingibjörg Sólrún segir að henni lítist ágætlega á að ekki eigi að ráðstafa fénu fyrr en 2007 þar sem það er ljóst að dífa verður í hagsveiflunni og nokkuð erfiðir tímar þá framundan og þá gott að eiga eitthvað upp á að hlaupa. Henni finnst ríkisstjórni dálítið fljót á sér að ætla að ráðstafa 43 milljörðum inn í framtíðina frá árinu 2007-2012. Ingibjörg Sólrún segir ríkisstjórnina, með yfirlýsingu sinni, senda röng skilaboð á sama tíma og því sé beint til annarra að sýna aðhald í fjármálum og sagði þetta vera dæmigert ráðherraræði þar sem ráðherrarnir setjast niður og svo fær hver ráðherra peninga í sinn málaflokk og í rauninni búið að niðurnjörva allt áður en Alþingi kemur að verkinu. Hún hefði frekar viljað sjá að fjármunirnir yrðu teknir til hliðar og vel hefði mátt ávaxta féð og ekki taka svona skarpar ákvarðanir um ráðstöfunina.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Kári segir Amgen hafa beitt fantaskap til að losna við hann Innlent Fleiri fréttir Kári segir Amgen hafa beitt fantaskap til að losna við hann Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Sjá meira