Innlent

Hrindir af stað uppeldisátaki

Velferðarsjóður barna ætlar að hrinda af stað uppeldisátaki á næstu dögum. Bæklingur með tíu heilræðum til foreldra og forráðamanna barna sem eiga að vekja þá til umhugsunar um uppeldishlutverkið, verður sendur inn á hvert einasta heimili í landinu á næstu dögum. Þar er spurt hvernig foreldar ætli að koma börnunum sínum til manns og hvernig þeir vilji að börnin sín verði. Að sögn Ástu Hrafnhildar Garðarsdóttur, verkefnisstjóra átaksins, mun Velferðarsjóðurinn starfa með þjóðkirkjunni, forsætisráðuneytinu, Íþróttasambandi Íslands, Lýðheilsustöð og fleirum til að minna á eitt heilræði í hverjum mánuði næstu tíu mánuðina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×