Stærstur hluti Símafjár í skuldir 6. september 2005 00:01
Stærstum hluta af söluandvirði Landsímans, tæpum sextíu og sjö milljörðum, verður varið til að greiða niður erlendar skuldir. Fjörutíu og þrír milljarðar fara í ýmis verkefni, meðal annars til að byggja upp nýtt hátæknisjúkrahús. Þá verður fimmtán milljörðum varið til vegagerðar, þar af rúmum tíu milljörðum til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu, mestu í Sundabraut. Andvirði Símans var greitt inn á reikning ríkisins í dag og er þetta hæsta greiðsla sem ríkinu hefur borist í allri sögu landsinsþ Ákvörðun um hvernig verja beri andvirðinu var kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna í dag og fréttamönnum síðdegis. Málið verður lagt fyrir sem frumvarp á Alþingi í haust. Með þessu lýkur stæstu einkavæðingu Íslandssögunnar og jafnframt hefur ríkið dregið sig alfarið úrs amkeppnisrekstri í fjarskiptaþjónustu. Alls verður varið átján milljörðum til að byggja upp nýtt hátæknisjúkrahús en það nemur um helmingi áætlaðs kostnaðar við bygginguna. Þá verður varið fimmtán milljörðum til vegagerðar, mest á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmum tíu milljörðum þar af mest í Sundabrautina. Þá verður að mestu lokið við tvöföldun Reykjanesbrutar auk framkvæmda við helstu þjóðvegi á landinu. Með þessu verður framkvæmdafé til vegagerðar meira en tvöfaldað á tímabilinu 2007 til 2010 þegar framkvæmdir eiga að standa yfir. Þremur milljörðum verður varið til kaupa á Varðskipi og flugvél fyrir Landhelgisgsæluna, tveimur og hálfum milljarði til að styrkja stöðu Nýsköpunarsjóðs, tveimur og hálfum milljarði til að ljúka við farsímavæðingu á þjóðvegi númer eutt og efla stórlega aðgang að háhraðatenginginum. Einum milljarði verður varið í að fjölga búsetuúrræðum fyrir geðfatlaða og einum til nýbyggingar fyrir stofnun íslenskra fræða, Árnastofnun. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, segir að full sátt hafi verið um málið hjá stjórnarflokkunum. Hann sagði málið hafa verið tekið fyrir á ríkisstjórnarfundi í morgun og samþykkt þar og síðan fengu þeir fullt umboð stjórnarflokkanna til að legga málið fram á Alþingi í upphafi þings sem stjórnarfrumvarp. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, segir að nýtt sjúkrahús komi til með að þýða mikinn sparnað fyrir þjóðarbúið. Hann sagðist hafa verið ánægður með að stór hluti peninganna hafi verið settur í sjúkrahús. Hann sagði að verið væri að byggja sjúkrahúsið upp á einum stað og þar með verður rekstrarkostnaður minni og betri aðstaða fyrir hjúkrunarfólk, lækna og sjúklinga. Með þessum fjármunum er hægt að byggja helminginn og þá verður auðvelt að skapa fé til að fara í framhaldið. Þeim hluta söluandvirðisins sem greiddur er í erlendri mynt, rúmum þrjátíu og tveimur miljörðum verður varið strax til að greiða niður erlendar skuldir. Afgangurinn verður lagður inn á reikning til ársins 2007, þegar umræddar framkvæmdir hefjast. Þetta á að skila ríkissjóði umtalsverðum vaxtatekjum sem nema helmingi hærri upphæð en arðgreiðslur frá Landsímanum að jafnaði síðustu ár. Jón Kristjánsson segir þetta gleðidag fyrir heilbrigðisþjónustuna. Þeim hluta söluandvirðisins sem greiddur er í erlendri mynt, rúmum þrjátíu og tveimur miljörðum verður varið strax til að greiða niður erlendar skuldir. Afgangurinn verður lagður inn á reikning til ársins 2007, þegar umræddar framkvæmdir hefjast. Þetta á að skila ríkissjóði umtalsverðum vaxtatekjum sem nema helmingi hærri upphæð en arðgreiðslur frá Landsímanum að jafnaði síðustu ár. Jón Kristjánsson segir þetta gleðidag fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Fleiri fréttir Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans Sjá meira