Innlent

Önnur konan komin í leitirnar

Lilja Hans sem ekkert hafði heyrst frá síðan fellibylurinn gekk yfir New Orleans er komin í leitirnar. Áður var talið að Lilja væri eini Íslendingurinn sem ekki var búið að ná í en nú hefur komið í ljós að 75 ára íslenskrar konu er einnig saknað. Konan heitir Karly Jóna Kristjónsdóttir Legere og er kölluð Systa. Íslenskur frændi hennar hafði samband við utanríkisráðuneytið á laugardaginn og síðan þá hefur hennar verið leitað. Systa býr ásamt manni sínum, Robert Legere, í smábænum Diamond Head sem er um 75 km norð-austur af New Orleans og er hans og barnanna þeirra þriggja enn saknað. Systa á við hjartavandamál að stríða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×