Hafa aðeins selt eitt fjöltengi 2. september 2005 00:01
Ikea hefur innkallað Rabalder-fjöltengi sem hafa verið í sölu um allan heim frá því í apríl á þessu ári en byrjað var að selja vöruna hér á landi þann 10. ágúst. Jóhannes Rúnar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Ikea segir þetta vera fyrirbyggjandi aðgerðir en galli varð við samsetningu á einhverjum tengjanna sem getur hafa valdið því að vírar í því hafi marist og skemmst. Skemmd á einangrun vírsins getur valdið því að vírinn sjálfur komist í snertingu við málmhluti innan í fjöltenginu sem leitt getur til hættu á rafstuði frá fjöltenginu sjálfu eða hlutum sem tengdir eru við það. Ekkert slys hefur þó verið skráð þar sem þetta tiltekna fjöltengi á hlut að máli en einungis eitt stykki hefur verið selt úr Ikea-versluninni hér á landi. Jóhannes segist aðspurður að ekki hafi oft orðið vart galla í vörum frá Ikea undanfarin ár. Þótt aðeins hafi verið selt eitt stykki af fjöltenginu skipti það ekki máli að mati Ikea þar sem öryggi viðskiptavina sé forgangsmál og því sé gripið til þessara aðgerða. Aðspurður hvers vegna aðeins eitt stykki hafi verið selt segir Jóhannes að fjöltengið sé nýkomið hingað til lands en á heimsvísu hafi það verið til sölu í lengri tíma. Spurður hvað gert sé til að koma í veg fyrir að svona hlutir endurtaki sig segir Jóhannes að innan Ikea verði farið yfir allar leiðbeiningar og eftirfylgni varðandi framleiðsluferlið og farið sé mjög djúpt í alla sauma í málinu.
Fréttir Innlent Mest lesið „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Innlent Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Innlent Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Erlent Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Erlent Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Létu sprengjum rigna á Kænugarð Erlent Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði Innlent Fleiri fréttir Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Ítrekað ofbeldi, skelfdur Íslendingur eftir skjálfta og padel-æði „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Leggja stöðvunarkröfu á framkæmdir við Hvammsvirkjun Lögreglan leitar upplýsinga um þennan mann Lögreglan leitar þessara manna Eldur kviknaði í hjúkrunarheimili á Höfn Stöðfirðingar þreyttir á ferðamönnum sem geri þarfir sínar um allan bæ Fagnar tillögu Sigurjóns og segir veiðiráðgjöf Hafró ranga Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Risaskjálfti í Kyrrahafi og bensínbrúsabílar í Breiðholti Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Sjá meira