Áhrifanna verður alls staðar vart 31. ágúst 2005 00:01
Á annað hundrað manns eru látnir, New Orleans-borg marar í hálfu kafi og ríflega milljón íbúa Louisiana, Mississippi og Alabama eru án rafmagns. Fregnir berast af líkum fljótandi í vötnum sem myndast hafa á hamfarasvæðunum og enn er fólk fast á háaloftum og húsþökum. Lögleysa hefur einnig gripið um sig og eru gripdeildir orðnar alvarlegt vandamál í New Orleans og Biloxi. Heyrst hefur af fólki stelandi byssum, skartgripum og áfengi úr verslununum, jafnvel beint fyrir framan nefið á lögregluþjónum. Óvíst er hvenær íbúar hamfarasvæðanna fá að snúa aftur til síns heima enda velta margir því fyrir sér hvort nokkuð sé eftir til að snúa aftur til. Óttast er að flóðasvæðin séu orðin pestarbæli vegna spilliefna sem farið hafa út í umhverfið og skólpmengunar. Sjúkdómar sem alla jafna eru tengdir við hitabeltið, eins og kólera, gætu breiðst út. Ofan á þetta bætist svo fjárhagstjónið sem fellibylurinn hefur valdið. Talið er að það geti numið 1.700 milljónum króna og orðið þar með það mesta sem fellibylur hefur valdið í sögu Bandaríkjanna. Bandarískar húseigendatryggingar ná sjaldnast yfir tjón vegna flóða og því munu margir húseigendur standa eftir slyppir og snauðir nema hið opinbera komi þeim til hjálpar. Áhrif olíunnar veigamest Enda þótt fellibylurinn sé fyrst og fremst persónulegur harmleikur fólksins sem varð fyrir honum er vitað mál að áhrif Katrínar á þjóðarbúskapinn, og raunar efnahagskerfi heimsins, verða talsverð. Meðal annars vegna þess að stór hluti inn- og útflutningsvara Bandaríkjanna fer um hafnir hamfarasvæðanna - einkum olía og gas en einnig landbúnaðarvörur - eru hagfræðingar þegar farnir að endurskoða hagvaxtarspár sínar fyrir þennan ársfjórðung. Áhrifin á olíuiðnaðinn eru sjálfsagt sá þáttur sem mest vægi mun hafa í efnahagslegu tilliti. Tíu prósent allrar olíu sem Bandaríkjamenn nota kemur úr Mexíkóflóa enda voru verðhækkanir á mörkuðum ekki lengi að koma fram. Ekki virðist hafa orðið mikið tjón á olíuborpöllum, höfnum og olíuhreinsistöðvum í óveðrinu en tafir á olíuflutningum hafa hins vegar þýtt að framleiðsla olíuhreinsistöðva hefur stöðvast. Keðjuverkun Þegar olíuverð er eins hátt og nú er, í kringum sjötíu dali fatið, minnkar kaupmáttur neytenda verulega. Í grein á vefútgáfu The Economist í gær um áhrif hamfaranna segir frá rannsókn þar sem því er haldið fram að fyrir hvert sent sem gallonið af bensíni hækkar í Bandaríkjunum minnkar kaupgeta almennings um hundrað milljarða króna. Þetta er sagt geta valdið samdrætti í verslun sem nemur rúmu prósenti, sem mun aftur hafa veruleg áhrif á þjóðarframleiðslu ársins. Áhrif slíks samdráttar ná langt út fyrir landsteinana. Stærstu útflutningsmarkaðir margra ríkja Asíu eru í Bandaríkjunum og minnkandi spurn eftir vörum þessara landa kemur ofan á tjónið sem hækkandi olíuverð hefur valdið. Áhrif olíuhækkananna gætu orðið svipuð á ríki Evrópu sem þá að sama skapi munu væntanlega draga úr innflutningi sínum. Þótt Ísland sé ekki eins háð bandarískum fiskmörkuðum og fyrir nokkrum árum þá má gera því skóna að hamfarirnar hafi því eflaust áhrif hér líka.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira