Stríðsástand í New Orleans 31. ágúst 2005 00:01
Gríðarleg eyðilegging, dauði og stjórnleysi blasir við hvert sem litið er á svæðunum sem fellibylurinn Katrín lék grátt. Stríðsástand er í New Orleans, sem er á kafi í vatni. Enginn veit hversu margir fórust þegar Katrín reið yfir en þeir skipta hundruðum hið minnsta. Í Missisippi hefur verið staðfest að hundrað týndu lífi en yfirvöld telja víst að sú tali muni tvöfaldast ef ekki þrefaldast. Þrjátíu fórust þegar íbúðarhús í Biloxi hrundi þegar níu metra há stormalda skall á því. Í New Orleans er vitað um á milli fimmtíu og hundrað sem fórust en endanleg tala er óljós, þar sem björgunarsveitir á bátum og þyrlum hafa vart undan að bjarga fólki sem hefst við á þökum heimila sinna við illan leik. Á meðan fljóta lík um í flóðavatninu í kring og rotna. Borgin er að sökkva í vatni sem enn flýtur inn eftir að varnargarðar við Pontchartrain-vatn gáfu sig. Áttatíu prósent borgarinnar eru á kafi í vatni sem er á köflum allt að sex metra djúpt, að sögn borgarstjórans. Sextíu metra breytt gat kom á varnargarðinn sem verkfræðingar frá Bandaríkjaher reyna nú að fylla upp í með sandpokum sem varpað er úr þyrlum. Talið er ólíklegt að það dugi til en vatnið ætti að ná eðlilegri hæð eftir um einn og hálfan sólarhring, og flóðavatnið ætti að sjatna í kjölfarið. Gamla, franska hverfið virðist hafa sloppið betur en stórir hlutar borgarinnar þar sem það situr nokkuð hærra en mörg önnur hverfi. Annars staðar í borginni ríkis algjört stjórnleysi, þjófar fara um ránshendi og íbúar eru sjálfir komnir út á götur, vopnaðir, til að reyna að halda uppi lögum og reglu. Þrjú þúsund og fimm hundruð þjóðvarðliðar hafa verið sendir til borgarinnar og lögreglumenn reyna gráir fyrir járnum að hafa stjórn á málum. Fréttamaður BBC segir að helst sé eins og verið sé að koma á herlögum og útgöngubann er í gildi. Matvara er af skornum skammti og ekkert hreint drykkjarvatn er að fá.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira