Aldrei kynnst neinu þessu líku 30. ágúst 2005 00:01
Alabama er einn þeirra staða þar sem lýst hefur verið yfir neyðarástandi vegna Katrínar. Íslendingur sem þar er staddur segist aldrei hafa kynnst neinu í líkingu við rigninguna í gærkvöldi þó að hann sé staddur vel inni í landi. Elvar Lúðvík Guðjónsson sem býr í Montgomery, höfuðborg Alabama, segir að veðrið þar hafi verið orðið gott í morgun en í gær hafi verið sannkallað steypiregn og mikið rok. Mjög hvasst hafi verið þegar fellibylurinn hafi gengið yfir nærri Montgomery og rigningin svo mikil að hann hafi aldrei sé neitt þessu líkt. Hann segir að þegar viðvörunarbjöllur hafi byrjað að hringja um alla borg hafi töluverð hræðsla gripið um sig meðal íbúanna. Aðspurður hvernig honum hafi verið innanbrjósts segir Elvar að hann sé vanur ýmsu frá Íslandi en þar sem hann hafi vitað að Montogmery yrði ekki illa úti hafi hann verið nokkuð rólegur. Honum hafi þó ekki staðið á sama því það geti myndast skýstrókar út frá fellibyljum sem séu mjög hættulegir. Montgomery er vel inni í landi og Elvar segir að ástandið sé miklu verra í suðurhluta Alabama þar sem fellibylurinn skall með krafti. Þar hafi flætt yfir borgir og borgin Mobile við ströndina hafi orðið sérstaklega illa úti. Fólk hafi þurft að flýja heimili sín þar og margir hafi eflaust misst þau og þá hafi stór brú þar eyðilagst. Það taki því alla vega viku að koma ástandinu í rétt horf. Andrúmsloftið í Montgomery er skiljanlega nokkuð sérstakt í dag og segir Elvar íbúana slegna og að vart sé talað um annað en fellibylinn Katrínu.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira