Tugir látnir og gríðarlegt eignatjón af völdum fellibylsins 30. ágúst 2005 00:01
Meira en fimmtíu manns létust þegar fellibylurinn Katrín skall á suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Eyðileggingin er gríðarleg og fjárhagslegt tjón vegna fellybylsins er talið nema vel á annað þúsund milljarða íslenskra króna. Flestir þeirra sem staðfest er að hafi farist voru búsettir í einni og sömu strandsýslunni í Missisippi. Vitað er að minnst fimmtíu hafi týnt þar lífi, en óstaðfestar fregnir herma að ekki færri en áttatíu hafi fallið. Enn hefur ekki tekist að komast að nokkrum íbúðarhverfum sökum vatnselgs og óttast er að tala látinna muni hækka þegar björgunarsveitarmenn hafa komist á öll svæðin sem urðu fyrir Katrínu. Enginn lést í New Orleans enda hafði gríðarlegur viðbúnaður átt sér stað þar og allir varaðir við í tæka tíð auk þess sem Katrín sveigði fram hjá borginni á síðustu stundu. Meira en milljón manns yfirgáfu borgina áður en Katrín kom og þeir sem urðu eftir flúðu flestir inn í Superdome-íþróttahöllina. Margir urðu þó að flýja upp á þak og björgunarsveitarmenn björguðu mörg hundruð manns af húsþökum víða um borgina í gær. Hlutar New Orleans eru enn á kafi og eyðileggingin er gríðarleg. Rafmagnslínur hafa eyðilagst, stór pálmatré liggja á víð og dreif og bílar fljóta eins og hráviði um alla borg. Fjölmargar byggingar eru gjörónýtar og götur sem ekki eru á floti eru þaktar glerbrotum og öðru rusli. Ljóst er að hreinsunarstarf mun taka fleiri vikur og það mun taka marga mánuði að koma borginni almennilega af stað á nýjan leik eftir yfirreið Katrínar. Þrátt fyrir það er ekki laust við að ákveðins léttis gæti í borginni enda var búist við enn meiri eyðileggingu, sem svo sannarlega hefði orðið raunin ef Katrín hefði ekki sveigt framhjá New Orleans á síðustu stundu, enda stendur borgin að miklu leyti undir sjávarmáli. Meira en milljón manns eru án rafmagns um gjörvalla suðurströnd Bandaríkjanna og að sögn yfirvalda gætu liðið allt að tveir mánuðir þar til rafmagn kemst á aftur. Þá er víðast hvar vatnslaust og útvarpssendingar nást hvergi. Í Missisippi, Alabama og Louisiana hafa líka orðið víðtækar skemmdir af völdum Katrínar. Þar liggja samgöngur að miklu leyti niðri og hættan af völdum snarpra vindhviða er ekki enn liðin að fullu hjá. Í morgun var lýst yfir neyðarástandi á allri suðurströnd Bandaríkjanna. Fellibylurinn er einhver sá öflugasti sem farið hefur yfir Bandaríkin og talið er að fjárhagslegt tjón af völdum hamfaranna undanfarinn sólarhring nemi á milli fimmtán hundruð og tvö þúsund milljörðum íslenskra króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira