Fordæmalaust eignatjón 29. ágúst 2005 00:01
Fellibylurinn Katrín gekk á land í Louisiana og Mississippi í Bandaríkjunum í gær og olli gífurlegu eignatjóni. Gamli bærinn í New Orleans lenti undir tveggja metra djúpu vatni og í Biloxi fuku hús eins og spilaborgir. Olíuverð náði áður óþekktum hæðum vegna bylsins. Allt stefndi í að Katrín yrði einhver öflugasti fellibylur sögunnar og því var viðbúnaður í New Orleans og nágrenni afar mikill. Um ein milljón manna yfirgaf borgina að skipan borgaryfirvalda og þeir sem ekki komust burt leituðu skjóls á hinum yfirbyggða Louisiana Superdome íþróttaleikvangi. Katrín gekk svo á land um ellefuleytið í gærmorgun að íslenskum tíma skammt austur af New Orleans. Vindhraði var þá afar mikill eða 62 metrar á sekúndu - tvöfalt fárviðri - en fljótlega tók svo að draga út styrk bylsins. Óttast hafði verið að yfirborð sjávar myndi hækka um ríflega átta metra vegna loftþrýsingslækkunarinnar en það reis þó aldrei meira en rúma fjóra metra. Engu að síður urðu mikil flóð í New Orleans, sem er allt að þrjá metra undir sjávarmáli, og var gamli bærinn um tíma á kafi í tveggja metra djúpu vatni. Rúður mölbrotnuðu og hluti þaksins af Louisiana Superdome rifnaði. Mikið tjón var í bænum Biloxi og við Pontchartain-vatn fóru heilu hverfin á bólakaf. Síðdegis tók Katrínu hins vegar að þverra máttur en engu að síður tókst henni að gera mikinn óskunda í Mississippi þangað sem hún lagði leið sína næst. Ekki er vitað um dauðsföll eða alvarleg slys á fólki vegna veðursins, ef frá eru talin þrír rosknir sjúklingar sem ekki þoldu flutning af hjúkrunarheimili sínu. Eignatjón er hins vegar gríðarlegt en frumáætlanir tryggingarfélaga gera ráð fyrir að tjónið nemi allt að 1.600 milljörðum króna, það mesta sem fellibylur hefur nokkurn tímann valdið í Bandaríkjunum.. Þá fór olíuverð í fyrsta sinn í sögunni yfir sjötíu dali á fatið en olíuframleiðsla á Mexíkóflóa stöðvaðist á meðan óveðrið gekk yfir.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira