Katrín að skella á New Orleans 29. ágúst 2005 00:01
Fellibylurinn Katrín er nú við það að skella á New Orleans af fullum krafti. Óttast er að meirihluti borgarinnar geti farið á kaf í vatni og milljón borgarbúa hið minnsta hafa flúið heimili sín. Vindhraðinn í Katrínu er nú í kringum 67 metrar á sekúndu og hefur heldur dregið úr krafti hennar eftir því sem hún hefur þokast nær landi í morgun. Hún er þó eftir sem áður gríðaröflug, af stærðargráðu fjögur, og einhver öflugasti fellibylur sem gengið hefur yfir Louisiana um áratuga skeið. Vaxi henni ásmegin á ný yrði hún fjórði fellibylurinn af stærðargráðu fimm sem gengur yfir Bandaríkin frá því að mælingar hófust. Það er þó ekki vindurinn sem flestir hafa áhyggjur af í New Orleans þó að hann muni væntanlega valda miklum skaða. Sjötíu prósent borgarinnar liggja undir sjávarmáli í hálfgerðri skál og allt í kring eru ár og stöðuvötn sem talið er víst að flæði yfir stíflugarða sem umlykja borgina. Talið er hugsanlegt að yfirborð vatnsins hækki um yfir átta metra þegar stormurinn gengur yfir, sem þýðir að stór hluti borgarinnar færi á kaf, þar á meðal hið margfræga franska hverfi. Fyrir utan vatnskemmdir er óttast að eiturefni úr verksmiðjum sem og úrgangur úr skólpkerfi myndi blandast flóðavatninu og auka enn frekar á skemmdirnar. Stræti borgarinnar eru tóm og yfir milljón íbúa hefur yfirgefið heimili sín. Í Bourbon Street, þar sem börum er aldrei lokað, er búið að loka og negla fyrir glugga. Í morgun voru helstu þjóðvegir frá New Orleans enn þá stíflaðir þar sem fólk reyndi að koma sér af hamfarasvæðinu. Nærri þrjátíu þúsund manns hafa komið sér fyrir í neyðarskýli á íþróttaleikvanginum Superdome. Nú er haldið í þá veiku von að stormurinn skelli ekki af fullum krafti á borginni en veðurfræðingar segja hann raunar hafa tekið stefnuna í austur og því sé hugsanlegt að New Orleans sleppi betur en útlit var fyrir. Fyrir utan Louisiana stefnir Katrín yfir ríkin Mississippi og Alabama, þar sem einnig hefur verið lýst yfir neyðarástandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira