Bush blandast í umræðurnar 26. ágúst 2005 00:01
Íraskir sjíar og Kúrdar munu að öllum líkindum leggja drög að stjórnarskrá landsins í dóm þjóðarinnar án þess að þingið fjalli sérstaklega um málið. George W. Bush Bandaríkjaforseti hringdi í gær í Abdul Aziz al-Hakim, einn leiðtoga heittrúaðra sjía, og bað hann um að slá af helstu kröfum sínum. Íraska þingið fékk ekki að fjalla um drög að stjórnarskrá landsins í gærkvöldi eins og búist hafði verið við þar sem enn ríkir sundrung á meðal sjía og Kúrda annars vegar og súnnía hins vegar um inntak plaggsins. Allt bendir því til að fyrrnefndi hópurinn vísi uppkastinu til þjóðaratkvæðagreiðslu 15. október en án blessunar súnnía gæti slík ráðstöfun kynt enn frekar undir ófriðarbálinu sem þegar logar í landinu. Í gær hringdi George W. Bush Bandaríkjaforseti í Abdul Aziz al-Hakim, leiðtoga Íslamska byltingarráðsins í Írak og einn af oddvitum heittrúaðra sjía, og hvatti hann til að miðla málum svo sættir næðust. Talsmaður al-Hakim sagði að sjíar væru til viðræðu um að endurskoða sínar ítrustu kröfur um að Írak yrði sambandsríki og um hreinsun valdakerfisins af fyrrverandi félögum úr Baath-flokknum. Engin viðbrögð hafa fengist frá súnníum um tilboð sjíanna en ólíklegt þykir að þeir láti freistast af því. Sem fyrr stendur aðalágreiningurinn um valddreifingu í landinu. Í núverandi drögum er gert ráð fyrir að átján héruð landsins hafi umtalsverða sjálfstjórn og engin takmörk eru sett fyrir því hversu mörg þeirra mega hópa sig saman og mynda stærri einingar. Slíkt hugnast súnníum afar illa því þeir óttast að verða landluktir í miðju Írak án nokkurra olíulinda. Sjíar og Kúrdar hugsa hins vegar með hryllingi til þeirra tíma þegar öflug einræðisstjórn stjórnaði öllu frá Bagdad og vilja því ríkt sjálfræði. Afskipti Bush af íröskum innanríkismálum eru svo allrar athygli verð og sýna hversu mikið stjórnvöld í Washington leggja upp úr að skriður komist á stjórnmálauppbyggingu í landinu. Hann á enda í vök að verjast heima fyrir þar sem stuðningurinn við hersetuna fer stöðugt þverrandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Fleiri fréttir Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Sjá meira