Fuglaflensa í Finnlandi 26. ágúst 2005 00:01
Finnsk yfirvöld segja að hugsanlega hafi greinst fuglaflensa í mávum þar í landi. Mávarnir voru veikir eða dauðir við tjörn í bænum Oulu í Norður-Finnlandi þar sem yfirvöld hafa fylgst með fuglum um hríð. Landbúnaðarráðherra Finnlands segir að enn sem komið er sé ekki hægt að staðfesta smitið þar sem lokaniðurstöður rannsókna liggja ekki fyrir fyrr en eftir þrjár vikur. Frumniðurstöður benda hins vegar til þess að mávarnir séu með fuglaflensu, en þó ekki bráðsmitandi stofn eins og þá sem hafa leikið Asíu grátt. Reynist fuglaflensa á kreiki í Finnlandi hefur flensan borist mun vestar en vísbendingar hafa áður verið um. Síðast í gær lýstu sérfræðingar Evrópusambandsins þeirri skoðun sinni að litlar líkur væru á að flensan yrði bein ógn í Evrópu og ekki væri þörf á aðgerðum í bili. Þetta hefur þó verið gagnrýnt, ekki síst í ljósi þess að farfuglar eru einir helstu berar flensunnar. Hér á landi er verið að skoða þessi mál, að sögn Jarle Reiersen, yfirlæknis alifugla hjá yfirdýralækni. Hann sagði upplýsinga um viðbrögð hér á landi að vænta á næstu dögum. Hann vonaðist til þess að fuglaflensa bærist ekki hingað til lands og lega landsins væri vissulega hagstæð, en farfuglar kæmu hingað til lands í miklu magni. Því væri ekki hægt að útiloka neitt.
Erlent Fréttir Mest lesið Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Erlent Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Erlent Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Innlent Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Innlent Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Innlent Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Sjá meira