Schröder hafi ekki brotið lög 25. ágúst 2005 00:01
Æðsti dómstóll Þýskalands hefur úrskurðað að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og flokkur hans hafi ekki brotið stjórnarskrána með því að fella eigin stjórn með vantrauststillögu á þingi. Þingkosningar verða því 18. september eins og ráð var fyrir gert. Tveir þingmenn, annar úr flokki Schröders og hinn frá Græningjaflokknum, samstarfsflokki hans í ríkisstjórninn,i lögðu fram kvörtun til dómstólsins og töldu ríkisstjórn ekki leyfilegt samkvæmt stjórnarskrá að fella eigin stjórn með þessum hætti. Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari, lék svipaðan leik árið 1983 og komst dómstóllinn þá að sömu niðurstöðu, að þetta stæðist stjórnarskrána. Eftir seinni heimsstyrjöldina var það sett inn í stjórnarskrá að þingið gæti ekki rofið sig sjálft, forsetinn einn hefði vald til þess. Þess vegna hafa kanslararnir beitt þessari aðferð til að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Ástæða þess að Schröder vildi nýjar kosningar var sú að hann vildi fá endurnýjað umboð kjósenda áður en ríkisstjórn hans færi af stað með róttækar og umdeildar efnahagsaðgerðir til að reyna að hleypa lífi í heldur staðnað efnahagslíf landsins. Sósíaldemókrataflokkur Schröders nýtur þó mun minna fylgis en kristilegir demókratar, samkvæmt skoðanakönnunum. Nokkuð hefur dregið saman með flokkunum undanfarið en stjórnmálaskýrendur segja Schröder þurfa á kraftaverki að halda á næstu fjórum vikum, ef flokkur hans á ekki að tapa kosningunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira