Búa til svartan lista yfir félög 25. ágúst 2005 00:01
Frakkar hyggjast búa til og birta opinberlega svartan lista yfir flugfélög og lönd sem eiga lélega sögu í flugöryggismálum. Félögunum sem rata á listann verður ekki leyft að lenda á flugvöllum í Frakklandi. Ágústmánuður hefur verið hrikalegur. Fjórar farþegaflugvélar hafa hrapað eða nauðlent. Í Toronto í Kanada fór betur en á horfðist og allir komust lífs af þegar farþegavél lenti úti í skurði í tilraun til lendingar í slæmu veðri. 40 fórust í Perú í gær með vél perúska ríkisflugfélagsins TANS, 121 lést þegar vél frá kýpverska flugfélaginu Helios fórst 14. ágúst og 160 manns fórust tveimur dögum síðar þegar kólumbísk farþegavél hrapaði í Venesúela. Þetta er versti mánuðurinn í flugi síðan í maí árið 2002 þegar þrjár vélar hröpuðu og 485 manns fórust. Almenningur í Frakklandi og sjálfsagt víðar um heim hefur áhyggjur af þessu og hefur ásakað flugmálayfirvöld um að miðla ekki öllum þeim upplýsingum sem eru fyrir hendi. Samgönguráðherra Frakklands, Dominique Perben, lýsti því yfir í dag að frönsk stjórnvöld hygðust ganga í málið á undan Evrópusambandinu og áður en langt um liði yrði birtur listi yfir flugfélög sem ekki væru talin örugg og þau fengju ekki að fljúga til og frá Frakklandi. Yfirmaður samgöngumála í Evrópusambandinu, Jaques Barrot, sagði í síðustu viku að Evrópusambandið hefði í hyggju að búa til sameiginlegan gagnagrunn og upp úr honum svartan lista yfir flugfélög sem rækju vélar sem ekki uppfylltu ströngustu öryggisskilyrði. Evrópuþingið á þó eftir að greiða atkvæði um tillöguna en búast má við að vinna við grunninn hefjist seint á þessu ári eða snemma á því næsta.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Sjá meira