Tungl í ljóni gefur lit 22. ágúst 2005 00:01
Tólf sinnum á ári þykjast margir sjá breytingar á fólki og dýrum, með fullu tungli. Geðveikir og flogaveikir voru eitt sinn sagðir þjáðir af tunglsýki. Ljósmæður segjast sjá meira líf í kringum fæðingar á fullu tungli og bændur kíkja í útihúsin. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, hefur oft sagt að það viti ekki á gott fyrir lögregluna þegar fullt tungl er, líkt og var nú um helgina, en mikil átök einkenndu menningarnótt. Það var þó á föstudaginn, rétt fyrir klukkan 18 sem fullt tungl var, en ekki á laugardaginn. Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur segir að áhrif fullt tungls gæti í þrjá daga, daginn á undan og á eftir. Stemningin breytist þó þegar fullu tungli er náð. "Það er meiri gleði þegar tunglið fer í fyllinguna, en þegar vaxtarkrafturinn minnkar verður fólk ergilegra. Þá er farið að fjara undan kraftinum." Það ástand á við á laugardagskvöldið þegar komið var fram yfir fullt tungl. Áhrif tungls á líkamann komi til vegna þess að við erum sjötíu prósent vatn, og flóð og fjara eigi við vatnið í líkamanum eins og annað vatn. Gunnlaugur segir að tunglið almennt opna á tilfinningar, fólk verði opnara og meira örvandi og meira fjör sé á skemmtistöðum. "Mér hefur alltaf fundist skemmtilegra, ef ég á annað borð er að fara út, að fara á fullu tungli." Tunglin tólf hafa sín mismunandi einkenni, eftir því sem Gunnlaugur segir. Í þetta sinn var tungl í ljóni og vatnsbera, en í ljóninu er mikið líf. Hann bendir á Menningarnótt og Hinsegin dagar séu haldnir í ljónsmerkinu og þær hátíðir séu mun litríkari en til dæmis 17. júní. "Ef fullt tungl er í nautinu, voginni eða krabbanum, þá er fólk rólegra. Þegar fullt tungl er í steingeit er fólk agaðra."
Fréttir Innlent Mest lesið Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Innlent Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Innlent „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri við að vita að hann gangi laus“ Innlent Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Erlent Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Erlent Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Erlent Ísland rampar upp Úkraínu Innlent Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Innlent Fleiri fréttir „Skiljanlegt að mörgum blöskri við að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Gengur laus grunaður um barnaníð og meintar rangfærslur ráðherra Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Stefán Einar greiðir fyrir umdeilda boli Breytingar á framhaldsskólastigi: „Við erum að reyna átta okkur á þessu“ Rannsaka hvort maðurinn hafi haft samræði við ungan drenginn Karlmaður á fertugsaldri fannst látinn í Hafnarfirði Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Vill að „guð“ taki á þeim sem vilja ekki fækka sveitarstjórnarmönnum Býður Sólveigu á fundinn og kannast ekkert við Virðingu Töldu ekki skilyrði fyrir varðhaldi yfir grunuðum barnaníðingi Kjarasamningur í höfn og atkvæðagreiðslu um verkfall aflýst Fara yfir gögnin en úttekt Viðskiptaráðs sé „skoðun hagsmunaaðila“ Sauð upp úr hjá förðunarmeistara og fegurðardrottningu Hvetja ráðherra til að mæta ekki á fund veitingamanna Bátar sviptir haffærisskírteini og Kourani sækir um náðun Sjá meira