40 starfsmenn vantar í 9 leikskóla 21. ágúst 2005 00:01
Af fimmtán leikskólum í Grafarvogi og Grafarholti sem Fréttablaðið spurðist fyrir hjá í gær eru aðeins sex fullmannaðir, en hina vantar nú þegar starfsmenn eða sjá fram á að þá vanti upp úr næstu mánaðamótum þegar sumarafleysingafólk hættir störfum. Auglýsingar eftir nýju starfsfólki hafa þó skilað einhverjum viðbrögðum sem og umfjöllun síðustu daga, en þó engan veginn nægilegum. Mannekla á leikskólum er vandamál víðar á höfuðborgarsvæðinu en ástandið virðist áberandi verst í þessum hverfum. "Þessi hverfi eru úr leið og fólk úr fjarlægari hverfum er ekki viljugt að keyra hingað til vinnu, allra síst á þessum launum," segir Ingibjörg Eyfells, leikskólastjóri í Geislabaug í Grafarholti. "Við ráðum því langoftast fólk úr hverfinu." Að sögn Ingibjargar hefur uppbygging leikskóla verið mjög hröð síðustu ár og menntun kennara ekki náð að fylgja því eftir. "Það vantar leikskólakennara í landinu." Hún segir að vegna lágra launa haldist leikskólum almennt illa á fólki. Hún segir ástandið hafi verið miserfitt milli ára en það sé óvenju erfitt núna þar sem nægt framboð er af annarri vinnu. Ingibjörgu vantar átta starfsmenn sem stendur, og leikskólinn er ekki fullnýttur. Yfir þrjátíu börn sem búið er að lofa vist þar geta ekki mætt fyrr en búið er að fá starfsfólk. Fleiri skólar í þessum hverfum eru í svipaðri stöðu, þótt engan vanti jafnmarga starfsmenn. Í öðrum skólum vantar tvo til fjóra starfsmenn og alls vantar nú um 25 starfsmenn. Í það minnsta einn leikskóli í Grafarvogi sér fram á að vísa börnum heim í dag, en fæstir eru svo illa staddir sem stendur. Nokkrir skólar til viðbótar gætu neyðst til að vísa börnum frá upp úr næstu mánaðamótum ef ekki rætist úr starfsmannamálum þeirra. Þá verður opnaður nýr leikskóli með þrjár deildir við Gvendargeisla í Grafarholti á næstu vikum og verða fimmtán störf við hann auglýst um eða eftir næstu helgi.
Fréttir Innlent Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Fleiri fréttir Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Sjá meira