Björguðu bát með snarræði 11. ágúst 2005 00:01
Snarræði bátsverja kom í veg fyrir að hraðfiskibáturinn Eyjólfur Ólafsson GK sykki í nótt. Þeir brunuðu beina leið upp í fjöru. Leki kom að bátnum um klukkan hálffjögur í nótt og óskuðu þá bátsverjar eftir aðstoð björgunarskips. Allt stefndi í að báturinn myndi sökkva og gripu þá bátsverjar til þess ráðs að sigla honum á fullri ferð upp í fjöruna í Aðalvík þar sem hann strandaði. Gott veður var á svæðinu og ekkert brim. Um hálfsex kom björgunarskipið Gunnar Friðriksson að og bjargaði áhöfninni um borð. Pálmi Stefánsson, skipstjóri á Gunnari, segir mennina aðeins hafa verið orðna kalda en ekkert hafi amað að þeim. Björgunarmenn könnuðu ástand bátsins sem var talsvert laskaður og ákváðu að reyna að ná honum á flot. Taug var komið í bátinn og náðist hann út á flóðinu um níu í morgun. Dælum var komið um borð og svo lagt af stað í höfn. Pálmi segir að settir hafi verið belgir og flotholt í lúkarinn ásamt björgunarbáti fiskibátsins til þess að halda flotinu í honum. Hann hafi svo verið dreginn aftur á bak til Bolungarvíkur. Gatið á bátnum var af stærri gerðinni og því ljóst að bátsverjarnir tveir sluppu með skrekkinn. Ekki er vitað hvernig leki kom að bátnum en grynningar eru víða undan ströndum í Aðalvík.
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira