Innlent

Geta haft ADSL hjá öðrum

Mörg netþjónustufyrirtæki geta boðið þeim sem vilja tengjast enska boltanum ADSL-tengingu á net Símans. "Ég tel að það sé vísvitandi verið að kynna þetta á röngum forsendum til þess að tryggja það að viðskiptavinir flytji sig yfir til Símans," segir Guðmundur Kr. Unnsteinsson, formaður INTER og framkvæmdastjóri Hringiðunnar. "Allar netþjónustur sem endurselja ADSL-þjónustu Símans og fleiri fyrirtækja geta boðið upp á sjónvarpsþjónustu yfir ADSL. Við höfum boðið upp á þetta lengi og ég veit um fjöldamörg önnur fyrirtæki sem gera það líka. Það er því ekki rétt sem halda mætti að að nauðsynlegt sé að kaupa þetta beint af Símanum." Guðmundur rekur þetta til þess að Síminn eigi Skjá einn. Guðmundur segir Hringiðuna hafa fengið töluvert af fyrirspurnum og viðskiptum vegna enska boltans í sumar og er ekki sáttur við viðskiptahætti Símans. "Við myndum gjarnan vilja selja fleiri viðskiptavinum þessa þjónustu en bara þeim sem eru hjá Símanum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×