Fundu einstakan bronspening 16. júlí 2005 00:01
Einstakur bronspeningur frá fimmtándu öld fannst við fornleifauppgröft við Skriðuklaustur í fyrradag. Klausturbyggingin sem verið er að grafa upp varpar nýju ljósi á starfsemi klaustursins og hefur það verið mun stærra en áður var talið. Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur stjórnar uppgreftrinum en að honum standa Minjasafn Austurlands, Gunnarsstofnun og Þjóðminjasafnið. Hún segir rannsóknina skera sig úr einkum fyrir það að hér sé að koma í ljós heildstæð mynd af klaustri í kaþólskri tíð sem ekki hafi fengist áður, hvorki með fornleifarannsóknum né rituðum heimildum. Margir hlutir hafa fundist við uppgröftinn sem tengjast klausturstarfinu, kertastjakar og fleira, en einnig lækningatæki sem sýna að þar hafi verið stundaðar lækningar, gluggi af klaustrinu og fleira. Í fyrradag fannst svo svokallaður „reiknipeningurr“ sem er sjaldgæft að finnist hérlendis. Peningurinn sem slíkur var verðlaus á sínum tíma en hann var meðal annars notaður til að reikna tíund og fleira. En það hefur ýmislegt komið á óvart varðandi klausturbygginguna sjálfa, sérstaklega hvað hún er heilleg. Einnig kemur á óvart hversu gríðarlega stór byggingin hefur verið. Ítarlega verður fjallað um þetta mál í fréttum Stöðvar 2 í kvöld og sýndar myndir frá uppgreftrinum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Fleiri fréttir Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sjá meira