Díselolía í tönkum við Smáralind 16. júlí 2005 00:01
Ríflega fimm þúsund lítrar af díselolíu eru geymdir í tönkum á bílastæði við Smáralindina. Eigandi olíunnar kveðst vita um fleiri samskonar tilvik. Það fór væntanlega ekki fram hjá mörgum að verð á díselolíu hækkaði um réttan helming fyrir skömmu. Fregnir bárust af því að ýmsir hefðu hamstrað olíu áður en verðhækkunin tók gildi, en fá dæmi hafa hins vegar fundist. En í dag frétti fréttastofan af því að mikið magn díselolíu væri geymt á bílastæði við Smáralindina. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að eigendur fyrirtækisins Flutningar.is voru þar á ferð. Þeir höfðu keypt nokkurt magn plasttanka utan af ávaxtaþykkni frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar og fyllt þá af díselolíu - 5600 lítrum af díselolíu, nánar til tekið. Tönkunum komu þeir fyrir í tengivagni á bílastæði milli Smáralindar og Smáratorgs. Ríkislögreglustjóri, slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðiseftirlitið og fleiri stofnanir eru að vinna að rannsókn mála af þessu tagi en nokkur sambærileg mál munu hafa komið upp - jafnvel að mikið magn díselolíu hafi verið geymt innanhúss. Ekki þarf að fjölyrða um hverjar afleiðingar elds í því húsnæði gætu orðið, eða hvað gæti gerst við Smáratorgið. Að sama skapi er hætta á mengun af völdum olíunnar og því verður að líkindum gripið til aðgerða á næstunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira