Bjórinn kominn í matvöruverslanir 16. júlí 2005 00:01
Bjórinn er kominn í matvöruverslanir. Í verslunum Nóatúns er nú hægt að kaupa gasgrill og fylgir bjór í kaupbæti; bjórinn er því ekki seldur heldur er hann gefins. Áfengislögin virðast ekkert segja um gefins bjór. Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup í febrúar á þessu ári vill meirihluti íslensku þjóðarinnar geta keypt bjór og léttvín í matvöruverslunum. Verslanir Nóatúns hafa nú fundið leið til að verða við þessum óskum almennings en þó fylgir sá böggull skammrifi að kaupa verður gasgrill til að fá bjórinn og má því segja að kippan kosti frá 15.900 til 19.900 krónur. Guðmundur Júlíusson, verslunarstjóri í Nóatúni, segir að þeir vilji engin leiðindi út af þessu og ef eitthvað „vesen“ muni skapast verður þessu hætt strax. Fram kemur í áfengislögum að innflutningur, heildsala, smásala, veitingar og framleiðsla áfengis í atvinnuskyni, án tilskilinna leyfa, sé ólögleg en hvergi er minnst á gjafir. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur einkaleyfi á smásölu áfengis en rökin sem færð hafa verið fyrir áframhaldandi einkasölu hafa meðal annars verið þau að forvarnarhlutverk ÁTVR felist fyrst og fremst í því að fylgja eftir að þeir sem kaupa áfengi hafi náð lágmarksaldri. Afgreiðslufólk Nóatúns sýndi það þó og sannaði í dag að það gat vel sinnt þessu starfi líkt og ÁTVR þegar 16 ára stúlka á vegum Stöðvar 2 hugðist kaupa grill, hvort í sinni versluninni. Áður en tilboðið byrjaði var haldinn fundur með starfsfólki verslananna og ítrekað að ekki mætti selja vöruna einstaklingum yngri en tuttugu ára. Þar að auki afgreiða vakt- og verslunarstjórar grillið við kassann og ætti því enginn undir tvítugt að sleppa í gegn. En Guðmundur verslunarstjóri kveðst bjartsýnn á að hægt verði að kaupa léttvín og bjór í matvöruverslunum á næstunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira