Leiðtogaslagur á báðum vígstöðvum 14. júlí 2005 00:01
Það stefnir í leiðtogaslag í R-listanum ef hann hangir saman fram að næstu kosningum. Bæði Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein segjast vilja borgarstjórastólinn. Þegar fréttastofan bar það undir Steinunni Valdísi hvort hún ætlaði að bjóða sig fram til áframhaldandi setu í borgarstjórastóli að því gefnu að samstarfi R Listans yrði haldið áfram, var svarið afdráttarlaust JÁ. Stefán Jón Hafstein var ekki jafn afdráttarlaus þegar sama spurning var borinn undir hann, og hann sagði ákvörðun sína ráðast af því hvernig valið á leiðtoga listans færi fram. Hann dró hins vegar ekkert úr áhuga sínum fyrir starfinu og sagðist gjarnan vijla gegna því. Hins vegar hafi þær aðferðir sem notaðar voru síðast þegar borgarstjórinn var valinn, verið honum mjög á móti skapi og alls óvíst væri að hann myndi gefa kost á sér í sæti á listanum yfir höfuð ef slíkar aðferðir yrðu eftur notaðar. Á orðum hans er því ekki hægt að skilja annað en að ef farið yrði í opið prófkjör myndi hann taka slaginn. Það er því ljóst að ef borgarbúar fá sjálfir að velja leiðtoga R Listans, munu nöfn bæði Steinunnar og Stefáns verða á kjörseðlunum. Oddviti sjálfstæðisflokksins segir allt bröltið hjá R Listanum upp á síðkastið sýna svo ekki verði um villst að hann sé endanlega orðinn að bandalagi um völd. Sjálfur segist Vilhjálmur ætla að bjóða sig fram sem leiðtoga sjálfstæðismanna á næsta ári. Þar á bæ er talið næsta víst að hann fái mótframboð og hefur Gísli Marteinn Baldurson þar helst verið nefndur til sögunnar. Það stefnir því í leiðtogaslag á tvennum vígstöðum í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna á næsta ári.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira