Stjórnarformaður FL fær ádrepu 9. júlí 2005 00:01
Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í FL Group, sakaði Hannes Smárason stjórnarformann um að virða hvorki starfsreglur né samþykktir félagsins á hluthafafundi í dag. Þrír stjórnarmenn sögðu af sér í lok júní og þrír aðrir seldu allan hlut sinn í félaginu og hurfu á braut. Nýir menn í stjórninni eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Magnús Ármann, Sigurður Bollason Þorsteinn M. Jónsson og Einar Ólafsson. En áður en kjörið fór fram kvaddi Inga Jóna Þórðardóttir, ein þeirra sem gekk úr stjórninni, sér hljóðs og hún sagði að í veigmiklum atriðium væri verulegur misbrestur á að farið væri eftir þeim reglum sem í gildi eru.Hún taldi því nauðsynlegt að gerðar yrðu ákveðnar ráðstafanir til að tryggja að stjónunarhættir væru í fullu samræmi við þann ramma sem samþykktir félagsins og starfsreglur félagsins kveða á um. Inga Jóna vitnaði í starfsreglur og samþykktir félagsins og sagði þar kveðið skýrt á um hlutverk og ábyrgð stjórnar ganvart meðferð fjármuna. Stjórnin þyrfti að undirbúa og samþykkja allar meiriháttar ákvarðanir og fjárfestingar . Þá þyrftu hagsmunir hluthafa að vera í fyrirrúmi. Þá ítrekaði hún að skýra þyrfti verkaskiptingu milli stjórnarformanns og varaformanns félagsins. Fl Group þyrfti að setja sér skýrar reglur og lúta þeim eins og aðrir á markaði. Hún sagði að traust væri undirstaða í öllum viðskiptum og að félag sem starfaði á markaði og væri í harðri samkeppni ætti allt sitt undir því að traust ríki milli hluthafa, starfsmanna, stjórnenda og viðskiptavina. Hannes Smárason gaf lítið út á ádrepu Ingu Jónu og sagðist ekki vilja eiga í orðaskaki við hana út af skoðunum hennar. Hann benti líka á að verið væri að keyra félagið áfram mjög hart og hratt og að félagði ætlaði og væri að ná miklum árangri.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira