Lennon og McCartney Bíldudals 7. júlí 2005 00:01
Páll Ágústsson sjómaður hefur í tuttugu ár verið ein helsta driffjöðurin í menningarlífi Bíldudals og meðal annars staðið fyrir landsþekktum vísnakvöldum, sem haldin hafa verið í bænum frá 1987. "Það má vel sjá á nýjum geisladiski sem gefinn var út í tilefni hátíðarinnar Bíldudals grænar um daginn að þessi vísnakvöld hafa heppnast vel en diskurinn er uppfullur af listamönnum sem stigu sín fyrstu skref á vísnakvöldi," segir Páll. "Sumir fóru þó aðrar leiðir eins og sést best á einni helstu menningarspírunni á Ísafirði en þar fer okkar maður; Elfar Logi Hannesson. Hann steig sín fyrstu skref hér einnig." Páll segir að líka séu óvenju mörg ljóð- og tónskáld í Arnarfirði og vill meina að fjörðurinn hreinlega framleiði listamenn."Við sem stöndum að kvæðakvöldunum höfum gert skáldið Hafliða Magnússon og tónskáldið Ástvald Jónsson að heiðursfélögum enda eru lög þeirra og textar jafnan fyrirferðarmikil á þessum kvöldum. Þeir eru svona Lennon og McCartney okkar Arnarfirðinga." Dansleikjahald hefur að mestu lagst niður á Bíldudal en Páll var ekki í vandræðum með að skipuleggja dansiböllin á árum áður. "Við uppgötvuðum Siggu Beinteins, hún var frekar lítið þekkt þegar við borguðum stjörnuprís fyrir hana. Þegar ballið var búið sátum við svo eftir með heilar þrjúþúsund krónur í hagnað," segir Páll og hlær. Fyrir skemmstu hætti Bílddælingur, stærsti atvinnurekandi bæjarins allri starfsemi og segir Páll að nú sé þungt hljóð í mörgum og jafnvel komið fararsnið á marga. "Ég fer hins vegar ekki neitt, ég flyt aldrei úr Arnarfirðinum," segir Páll og lemur í borð að sjóara sið. Sigga Beints.MYND/HariBítlarnir.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Útgjöldin há en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Sjá meira