Hér og nú kærir blaðið Hér og nú 6. júlí 2005 00:01
Auglýsingastofan Hér og nú ehf. kærði í gær samnefnt tímarit fyrir notkun nafnsins Hér og nú og fer fram á að notkun nafnsins verði hætt. Einnig vill stofan að málið fái forgang hjá Samkeppnisstofnun vegna þeirrar neikvæðu umræðu sem verið hefur um tímaritið í fjölmiðlum undanfarið. "Við skoðuðum okkar réttarstöðu um leið og blaðið hóf göngu sína," segir Ingvi Jökull Logason, eigandi stofunnar. "En umræðan hvatti okkur til þess að flýta kæruferlinu." Hann segir bæði auglýsingastofuna og 365 starfa á sviði fjölmiðlunar og að nokkuð sé um þann misskilning að fólk telji Auglýsingastofuna vera útgefanda tímaritsins. Henni hafi borist fjöldamörg símtöl sem ætluð eru blaðinu. "Fólk hefur hringt í okkur bæði til að hella úr skálum reiði sinnar og til að koma fréttum áleiðis." Jafnvel hefur verið hringt heim til stjórnenda fyrirtækisins að kvöldi til. "Það sem skiptir samt mestu máli er óánægja viðskiptavina okkar sem vilja alls ekki tengjast nafninu Hér og nú. Sama gildir um tilvonandi viðskiptavini." Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri 365, segist ekki geta séð að tímaritið og auglýsingastofan séu að starfa á sama vettvangi og því sé ekkert athugavert við notkun nafnsins Hér og nú. "Það er alþekkt að heiti á vöru eða þjónustu sé það sama og nafn á fyrirtækjum í óskyldum rekstri. Þannig er til dæmis Kastljós fyrirtæki í Skipholti í Reykjavík, Víðsjá fyrirtæki í Birkihlíð og Spegillinn félag í Hafnarfirði. Þá eru til ein fimm fyrirtæki sem heita Vísir. Það eru fjöldamörg álíka dæmi til."
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira