Settu sig í spor pyntaðra fanga 26. júní 2005 00:01 "
Það er skorið á öll skynfæri fanganna í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu með eyrnahlífum, rykgrímum og augnhlífum, svo eru þeir látnir sitja þannig í hnipri í allt að 45 mínútur. Við vildum leyfa fólki að kynnast því hvernig það er að verða fórnarlamb slíkra aðferða. Svo gat fólk spurt sig sjálft að því hvort um pyntingar sé að ræða," segir Jón Þór Ólafsson, forsvarsmaður aðgerðarhópsins innan Amnesty International, sem stóð fyrir uppákomunni á Austurvelli í gær en 26. júní er alþjóðlegur dagur Sameinuðu þjóðanna til stuðnings fórnarlamba pyntinga. Jón segir að um 25 manns hafi kynnst aðferðum Bandaríkjastjórnar af eigin raun á Austurvelli í gær. Viðstöddum gafst kostur á því að skrifa undir áskorun þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að beita sér fyrir því að Bandaríkjastjórn gefi leyfi sitt til þess að fram fari rannsókn á öllum ásökunum um illa meðferð á föngum í Guantanamo og að hinir ábyrgu verði látnir svara til saka komi í ljós að í fangelsinu sé notast við ólöglegar aðferðir. Meira en 70 manns skrifuðu undir áskorunina og heldur undirskriftasöfnun áfram á næstunni. Áskorunin verður í kjölfarið send til íslensku ríkisstjórnarinnar. "Fyrsta krafa Amnesty er að þeir sem beri ábyrgð á pyntingunum verði látnir svara til saka, að Amnesty eða svipuð samtök fái að skoða aðstæður í þessum fangabúðum og að eftirlitsfulltrúi SÞ, með framfylgd alþjóðlegs samnings sem bannar pyndingar, fái óheftan aðgang að búðunum en honum hefur hingað til verið neitað um aðganginn. Fjórða krafan er að þeir sem eru í haldi vegna stríðsins gegn hryðjuverkum fái réttláta málsmeðferð fyrir dómsstólum, og að þeir verði leystir úr haldi ef engar ákærur liggja fyrir að því loknu. Seinasta krafan er að Guantomano verði lokað," segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, um kröfur nýs samræmds átaks Amnesty gegn pyntingum í heiminum sem hófst formlega í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira