Umferðaröryggi eykst með göngum 24. júní 2005 00:01
Umferðaröryggi á Suðausturlandi jókst til muna í dag þegar göng undir Almannaskarð voru opnuð. Verkið kostaði minna en gert var ráð fyrir og lauk rúmum þremur mánuðum á undan áætlun. Það var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sem opnaði göngin formlega upp úr klukkan tvö í dag. Hornfirðingar fjölmenntu í tilefni dagsins og talsverð röð bíla hafði safnast saman til að komast í gegnum göngin. Karlakór Hornfirðinga tók nokkur lög í tilefni dagsins og veðrið lék við þá sem voru saman komnir við Almannaskarð. Göngin eru alls rúmir 1300 metrar að lengd og nýir vegir beggja vegna alls um 5,5 kílómetrar. Gamla leiðin lá um Almannaskarð sem var einn brattasti hluti hringvegarins. Göngin sem leysa hana af hólmi stytta hringveginn ekki mikið en auka öryggi til muna. Sturla Böðvarsson segir að Almannaskarðið hafi verið hættulegur kafli á hringveginum og þess vegna hafi verið tekin ákvörðun um að grafa göngin. Þau stórauka umferðaröryggi á svæðinu. Margir muna þegar Sturla Böðvarsson sprengdi síðasta haftið í Almannaskarðsgöngum. Staðreyndin er sú að framkvæmdin hefur gengið mjög vel fyrir sig í aðalatriðum. Kostnaður er undir áætlun og verkinu lauk rúmum þremur mánuðum fyrr en til stóð. Heildarkostnaður við göngin er rösklega milljarður króna sem er nokkuð minna en gert var ráð fyrir. Samgönguráðherra leiðist ekki hversu vel verkið hefur gengið. Hann segir að það sé skemmtilegt þegar svo vel takist til og göngin séu mjög glæsilegt mannvirki.
Fréttir Innlent Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Fleiri fréttir Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu Sjá meira