Framtíð Landakotsskóla í óvissu 9. júní 2005 00:01
Ástandið í Landakotsskóla er ekki að skýrast þrátt fyrir fund stjórnar og foreldra í gær. Formaður stjórnar Stjórn Landakotsskóla hélt fund í gærkvöldi með foreldrum barna í Landakotsskóla. Búist var við því fyrir fundinn að mál skólans myndu skýrast á fundinum. Margrét Halldórsdóttir sem fer nú með starfsmannamál í skólanum ásamt Írenu Kojic, meðan enginn skólastjóri er við störf, las upp nafnalista með nöfnum átta þeirra kennara sem hafa skuldbundið sig til að kenna áfram við skólann. Hún tók það fram að einhverjir kennarar hefðu ekki enn gefið svar sitt um það hvort þeir ætluðu að halda áfram störfum. Laufey Jónsdóttir sem hefur verið kennari við skólann las upp yfirlýsingu með um átta öðrum nöfnum kennara sem ætla ekki að sækja um áframhaldandi starf við skólann og skoruðu á stjórn skólans að segja af sér. Sami hópur kennara leitaði í gærmorgun til lögfræðings til þess að kanna réttarstöðu sína gagnvart því sem þeir töldu vera þvingandi ráðningarskilyrði skólastjórnarinnar eins og kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Það virðist því vera sem kennaraliðið skiptist upp í tvær mjög skýrar fylkingar, annars vegar þeir sem hafa ákveðið að starfa við skólann og styðja skólastjórnina og hins vegar sá hópur sem hefur ekki sagt ætla að starfa við skólann og leitar nú réttar síns. Hvorug fylkingin virðist ætla að gefa eftir í málinu. Gunnar Örn Ólafsson stjórnarformaður tók til máls að þessu loknu og lýsti því yfir að meginspurningin væri hvort skólastarf myndi halda áfram í Landakotsskóla eða ekki. Svo virðist sem þriðji hópurinn í málinu sé kominn fram en það er hópur foreldra sem tekur ekki afstöðu með annarri hvorri fylkingu kennara í málinu heldur bað fundargesti að hugsa fyrst og fremst um hag þeirra barna sem nema við skólann. Kona kom í pontu og flutti ræðu þess efnis og hlaut mikið lófaklapp fyrir.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna Sjá meira