Báturinn sökk mjög hratt 9. maí 2005 00:01
Tveir menn björguðust þegar línubáturinn Ásdís Ólöf sökk skyndilega norðvestur af Siglunesi í nótt. Neyðarkall barst frá bátnum laust fyrir klukkan tvö í nótt í gegnum sjálfvirkt tilkynningaskyldukerfi og reynt var að ná sambandi við bátinn en án árangurs. Sigurvin, björgunarbátur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Siglufirði, var kallaður út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Einnig voru sjófarendur beðnir um að svipast um, meðal annars fór línubáturinn Óskar þegar á staðinn, en hann var þá staddur út af Skagafirði. Um klukkustund síðar tilkynnti áhöfn Sigurvins að hún sæi neyðarblys og skömmu síðar var búið að bjarga báðum skipverjum Ásdísar Ólafar um borð. Þá maraði Ásdís Ólöf í hálfu kafi. Áhöfnin var að draga síðasta balann þegar báturinn seig skyndilega að aftan og sökk hann hratt. Skipverjum rétt tókst að komast í gúmmíbjörgunarbát og var vistin þar ágæt. Þeir voru allan tímann vissir um að hjálp væri á leiðinni. Ekki er ljóst hvers vegna báturinn sökk en hugsanlegt er að slanga hafi farið ofan í vélarrúmið þannig að sjór flæddi þar inn. Ákveðið var að reyna að draga bátinn til lands. Fyrst var bundið í stefni bátsins en taugin slitnaði. Þá var gripið til þess ráðs að bregða taug aftur fyrir stýrishús Ásdísar Ólafar og þannig tókst að draga bátinn til hafnar og er hann nú kominn upp á bryggju á Siglufirði. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort það borgar sig að gera við hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Innlent Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Viðskipti innlent Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Erlent Hættir sem ritstjóri Kveiks Innlent Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent Fleiri fréttir Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Sjá meira