Sport

Úrskurður aganefndar KSÍ

Á fundi aganefndar KSÍ í dag voru tveir leikmenn og einn aðstoðarþjálfari úrskurðaðir í tveggja leikja bann vegna brottvísana í leikjum í Deildarbikarnum. Þórður Birgisson, leikmaður KS, vegna brottvísunar 23. apríl, Gunnar Bjarnason, leikmaður ÍH, vegna brottvísunar 22. apríl, og Leifur Garðarsson, aðstoðarþjálfari FH, vegna brottvísunar 28. apríl. Þetta kemur fram á www.ksi.is.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×