Vilja ríkisstofnanir til Akureyrar 2. maí 2005 00:01
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur óskað eftir viðræðum við sjávarútvegsráðherra um flutning á meginstarfsemi Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunarinnar til Akureyrar og er KEA tilbúið að greiða kostnaðinn við flutninginn. KEA hefur einnig ákveðið að rita iðnaðarráðherra og einkavæðingarnefnd bréf þar sem óskað verði eftir viðræðum um kaup á Íslenskum orkurannsóknum (ÍSOR). Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, segir félagið tilbúið að leggja fram hundruð milljóna króna vegna flutnings Fiskistofu og Hafrannóknastofnunarinnar til Akureyrar og kaups KEA á ÍSOR. Andri segir kostnaðinn við flutning á Fiskistofu einni og sér á bilinu 50 til 100 milljónir króna. "Við vitum ekki hver kostnaðurinn er við að flytja starfsemi Hafrannsóknastofnunar til Akureyrar og heldur ekki hvað ríkið vill fá fyrir Íslenskar orkurannsóknir en velta félagsins er um hálfur milljarður króna. Allar þessar þrjár stofnanir eru núna með starfsemi bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri en við teljum að hægt sé að vinna mörg verkefni á þeirra vegum betur frá Akureyri og með minni tilkostnaði," segir Andri. Magnús Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, fagnar framtaki KEA. „Með tilliti til byggðaáætlunar get ég ekki séð hvernig ríkið getur slegið á þessa hönd. Opinberum störfum á Akureyri fækkaði um níu í fyrra og ef stjórnvöld þiggja ekki þessa fjármuni frá KEA þá hefur varla verið mikil alvara á bak við byggðaáætlunina þar sem segir að unnið verði að flutningi opinberra starfa og verkefna til Akureyrar," segir Magnús Andri Teitsson segir að auðveldlega megi flytja fleiri ríkisstofnanir til Akureyrar. "Hagstofu Íslands mætti vandalaust flytja til Akureyrar. Hér er töluvert af lausu skrifstofuhúsnæði og því mun húsnæðisekla ekki setja strik í reikninginn varðandi flutning opinberra stofnana til Akureyrar," segir Andri.
Fréttir Innlent Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sjá meira