Tugmilljónir í laxarannsóknir 1. maí 2005 00:01
Starfsmenn Veiðimálastofnunar hafa að undanförnu komið fyrir síritandi mælimerkjum í laxaseiðum sem mæla hita og dýpi í allt að tvö ár. Verkefnið er stærsta einstaka verkefnið sem Veiðimálastofnun hefur ráðist í og er áætlað að um 70 til 80 milljónir króna þurfi til að fjármagna það. Ráðgert er að árlega verði sleppt 300 merktum seiðum næstu þrjú árin en verkefninu lýkur eftir fimm ár þegar seiðin hafa skilað sér úr hafi. Þeim verður sleppt í Kiðafellsá við sunnanverðan Hvalfjörð, en Veiðimálastofnun hefur tekið ána á leigu meðan á verkefninu stendur. Sigurður Már Einarsson , fiskifræðingur hjá Veiðimálastofnun á Hvanneyri, segir að verið sé að þróa aðferðir til að tryggja sem bestan árangur af verkefninu og hámarka endurheimt seiðanna. "Tilgangur rannsóknarinnar er að komast að því hvar laxinn heldur sig í úthafinu, en það hefur verið mönnum nokkur ráðgáta. Rannsóknir í laxveiðiám við Norður Atlantshaf leiða í ljós aukin afföll laxa á dvalartíma þeirra í sjónum, sérstaklega hjá stórlaxi sem er tvo ár í sjó áður en hann gengur upp í árnar. Við þurfum að afla þekkingar á farleiðum og búsvæðum þeirra í sjó, en slík vitneskja getur varpað ljósi á þessa hnignun. Þessi þróun hófst fyrir um 15 árum og enn sér ekki fyrir endann á þessari lægð", segir Sigurður Már. Með því að bera saman upplýsingar úr endurheimtum mælimerkjum og upplýsingar frá gervitunglum um yfirborðshita sjávar má kortleggja hvar laxinn heldur sig á mismunandi tímum í úthöfunum, en laxinn er uppsjávarfiskur líkt og síld. Mælimerkin eru þróuð og framleidd hjá hátæknifyrirtækinu Stjörnu Odda. Þetta er í fyrsta skipti sem svo smáum mælimerkjum er komið fyrir í laxagönguseiðum. NASCO, Alþjóða laxverndarsamtökin, hafa nú komið á fót laxverndarráði í samvinnu við þau lönd sem hagsmuna eiga að gæta við verndun og nýtingu Atlantshafslaxins. Ráðið hefur að markmiði að stuðla að samvinnu landanna um rannsóknir á ástæðum þessarar hnignunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Innlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Erlent Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Innlent Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Innlent Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Mun sjá eftir árásinni alla ævi Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Sjá meira