Sport

O´Neal tæpur fyrir fyrsta leikinn

Shaquille O´Neal, miðherji Miami Heat hefur enn ekki geta æft með liði sínu  vegna meiðsla sem hann varð fyrir á dögunum og óvíst þykir um þáttöku hans í fyrsta leiknum við New Jersey á sunnudagskvöld. O´Neal varð fyrir því óláni í einu af síðustu leikjunum á tímabilinu, að fá hné nafna síns Jermaine O´Neal hjá Indiana Pacers í lærið á sér með þeim afleiðingum að hann marðist illa og hefur ekkert geta æft síðan. "Ég spila ekki nema ég sé 95% heill á sál og líkama í úrslitakeppninni. Ég mun ekki reyna að æfa fyrr en daginn fyrir leik (laugardag) og þá kemur í ljós hvort ég verð með í fyrsta leiknum," sagði tröllið. Miami vann alla þrjá leiki sína við Nets í vetur, en athygli vekur að í þessum þremur sigrum var það ekki Shaquille O´Neal sem var Nets erfiðastur, því hann var aðeins með 17 stig og 9,7 fráköst að meðaltali í leik í viðureignum liðanna, sem þykir nú ekki ýkja merkileg tölfræði þegar hann er annars vegar.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×