Skiptar skoðanir um sameiningu 10. apríl 2005 00:01
Þann 23. apríl munu íbúar fimm sveitarfélaga í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar greiða atkvæði sitt með eða á móti sameiningu sveitarfélaganna Borgarbyggðar, Skorradalshrepps, Hvítársíðuhrepps, Kolbeinsstaðahrepps og Borgarfjarðarsveitar. Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Borgarbyggð, segir sameiningarnefndina einhuga. "Í skoðanakönnun á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi kom fram eindreginn vilji íbúa fyrir sameiningu. Við höfum sent út málefnaskrá og fundaherferð hefst í vikunni," segir Helga og bætir við að þau málefni sem brunnu heitast á mönnum við sameininguna 1994 séu nú í góðum farvegi. "Mér vitandi er enginn ásteitingarsteinn í þessari umræðu. Fólk sér að við sameiningu verður til fjárhagslega sterkt sveitarfélag á landsvísu; ákveðið mótvægi við Árborg og Reykjanesbæ. Svæðið hefur verið eitt þjónustu- og atvinnusvæði lengi og við orðin vön að vinna saman," segir Helga. "Sameining styrkir svæðið sem eina heild og veitir ákveðna möguleika á uppbyggingu til framtíðar." Fram að þessu hefur Skorradalshreppur fellt sameiningartillögur og Davíð Pétursson oddviti segir skoðanir manna enn skiptar. "Menn vilja vera sjálfstæðir eins lengi og hægt er. Við höfum rekið sveitarfélagið þannig að álögur eru minni en annarsstaðar og ekki þurft fjárhagslega aðstoð. Það er talað um að æskilegt sé að stækka þótt maður sjái ekki rekstrarlegan ávinning af því. Fólk er hrætt við að í stóru sveitarfélagi myndist jaðarbyggðir sem verði útundan. Fámenn sveitarfélög hafa litlar líkur á miklum áhrifum og þéttbýli tekur alltaf til sín töluvert af ráðstöfunarfé. Viðkvæmust eru þó skólamálin, því með hagræðingu sameiginlegs sveitarfélags er hætta á að fámennari skólar leggist niður," segir Davíð sem hvetur fólk að mæta á kjörstað. "Það væri dapurlegt ef sameinað yrði með innan við fimmtíu prósent atkvæðamagni og slæmt ef fólk skilar sér ekki á kjörstað. Kjörsókn verður að vera áttatíu prósent svo hún sé marktæk."
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira