Telja hættu á risaeldgosi 6. apríl 2005 00:01
Vísindamenn telja að viðsnúningur geti orðið á segulsviði jarðar innan fárra ára og að risaeldgos yrði samfara því, sem gæti orðið á Íslandi. Slíkt eldgos yrði hundrað þúsund sinnum stærra en gosið í Grímsvötnum í fyrra. Hópur erlendra vísindamanna telur líkur á því að viðsnúningur eða svokölluð umpólun á segulsviði jarðar verði samtímis umpólun á segulsviði sólarinnar árið 2012, eða eftir 7 ár. Þeir telja einnig að risaeldgos yrði samfara því og eru fjórir líklegir gosstaðir á jörðinni nefndir í því sambandi: Ísland, Hawaii, Indónesía og Yellowstone í Bandaríkjunum. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á jarðvísindadeild Háskóla Íslands, telur ólíklegt að þetta gerist en að hans sögn hefur umpólun nokkrum sinnum orðið á segulsviði jarðar og getur slíkt haft mikil áhrif. Hann segir að ef þetta gerðist myndi segulsviðið minnka og deyja út og til yrði nýtt svið þar sem núverandi segulnorðurpóll yrði nálægt suðurskautinu í stað norðurpólsins. Þetta hefði áhrif á allt sem tengdist segulsviði og líklega yrði talsvert ójafnvægi í lífríkinu við þessar breytingar. Því gæti þetta haft umtalsverð áhrif á jörðinni. Risaeldgos eru fátíð en hrikaleg þar sem þau geta valdið mikilli kólnun á jörðinni vegna gríðarlegs öskufalls og þau eru hættuleg vegna gastegunda sem fara út í andrúmsloftið. Vitað er um tvö slík eldgos, annað sem varð fyrir 74 þúsund árum í Toba-eldfjalli á Indónesíu og hitt sem varð fyrir 640 þúsund árum í Yellowstone í Bandaríkjunum. Að sögn Freysteins Sigmundssonar yrði slíkt eldgos um þúsund rúmkílómetrar eða um hundrað þúsund sinnum stærra en gosið sem varð í Grímsvötnum í nóvember síðastliðnum. En hversu líklegt er að risaeldgos verði á Íslandi innan fárra ára? Freysteinn telur að það séu engin líkindi á því. Jarðvísindamenn búist við að sjá sambærilega undanfara og fyrir önnur eldgos, þ.e. að kvika safnist fyrir í jörðinni. Undanfari slíkra atburða gæti mælst í áratugum og það þurfi gríðarlegt magn af kviku að safnast fyrir og umfangsmikið landris verða. Ýmiss konar umbrot í sjáist í eldfjöllum á Íslandi en ofureldgos séu af allt annarri stærðargráðu.
Fréttir Innlent Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira