Sjóvá kaupir hugverk Bubba 28. febrúar 2005 00:01
Sjóvá hefur keypt hugverk Bubba Morthens. Samningurinn, sem er hinn fyrsti sinnar tegundar á Íslandi, veitir tryggingafélaginu allar tekjur af útvarpsspilun laga Bubba og tekjur af plötusölu hans. Samningurinn á sér fyrirmynd í útlöndum og er kenndur við Pullman, en listamenn á við David Bowie og Rolling Stones hafa gert ámóta samninga. Í honum felst að tryggingafélagið greiðir Bubba Morthens ákveðna fjárhæð sem það fær síðan til baka með því að fá allar stefgreiðslur og greiðslur vegna plötusölu í ákveðinn tíma eða þar til ákveðinni fjárhæð er náð. Tryggingafélagið telur þetta góð viðskipti. Þorgils Óttar Mathiesen, forstjóri Sjóvár, segir að fyrirtækið fjárfesti í skulda- og hlutabréfum en þetta fyrirkomulag sé nýtt á Íslandi. Íslandsbanki hafi séð um að útbúa samninginn en hann sé hluti af áhættudreifingu Sjóvár. Það sé ekki hvaða listamaður sem er sem geti lagt fram jafnfjölbreytilegt og mikið safn af tónlist og Bubbi og því telji fyrirtækið þetta örugga fjárfestingu til framtíðar. Hagnaður tryggingafélagsins, eða munurinn á því sem það greiðir Bubba nú og það sem það fær í sinn hlut, felst í ákveðnum vöxtum eða ávöxtunarkröfu. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir að þetta þýði að listamaðurinn fái greitt út fyrir fram það sem áætlað sé að komi inn í stefgjöldum og sölu á útgefnu efni. Gerist þetta hraðar en samningurinn kveði á um greiðist það hraðar til baka og á styttri tíma og listamaðurinn fái aftur það fé sem fæst með stefgjöldum og plötusölu. Gangi hins vegar ekki eins vel og lagt hafi verið upp með taki það aðeins lengri tíma. Bubbi segir þennan samning mikilsverðan, hann veiti sér öryggi og geri sér kleift að sinna listsköpun sinni. Hann hefur eftir sem áður allan yfirráðarétt yfir verkum sínum og ekkert megi gera við þau án hans samþykkis. En hversu langur er þessi samningur og upp á hvaða fjárhæð hljóðar hann? Bubbi segist ekki ræða það nákvæmlega en um sé að ræða tugi milljóna og tiltekinn árafjölda.
Menning Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira